Fasteignaleitin
Skráð 19. ágúst 2026

Hraunbraut 43

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-805
338.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
105.900.000 kr.
Fermetraverð
312.758 kr./m2
Fasteignamat
85.750.000 kr.
Brunabótamat
213.450.000 kr.
Mynd af Andrea Ósk Harradóttir
Andrea Ósk Harradóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Garður
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2521398
Landnúmer
233711
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt.
Þak
Upprunalegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóður pallur sem liggur meðfram stórum hluta hússins.
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Glæsilegt 200,4 m² einbýlishús með rúmgóðri hjónasvítu, stórum tvöföldum bílskúr og fallegri verönd.
  • Þrjú svefnherbergi
  • Hjónasvíta með sérbaðherbergi
  • Innbyggður 62,2 m² tvöfaldur bílskúr
  • Um 130 m² timburverönd með skjólveggjum

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

Birt stærð eignar er 200,4 m² samkv. HMS.

Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús, stofu / borðstofu, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö önnur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri: Bjart og snyrtilegt anddyri með flísum á gólfi og góðum þreföldum fataskáp. Frá anddyri er gengið inn í þvottahús og þaðan áfram inn í bílskúr.
Gangur: Gangur tengir rými eignarinnar vel saman og er harðparket á gólfi.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús sem er hluti af opnu alrými með stofu og borðstofu. L-laga innrétting með eyju og helluborði, ofni og örbylgjuofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og búrskáp. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Harðparket er á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda eina fallega heild. Úr stofunni er útgengt á um 130 m² timburverönd með skjólveggjum sem liggur meðfram suður- og vesturhlið hússins. Vegghengdur skápur í stofu fylgir eigninni. Harðparket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sexföldum fataskáp og sérbaðherbergi inn af sem saman mynda glæsilega hjónasvítu. Harðparket er á gólfi.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Fallegt og vel útbúið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og baðkar. Gluggi hleypir inn góðri náttúrulegri birtu.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott svefnherbergi með fjórföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Bjart og rúmgott svefnherbergi með tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt og vel útbúið baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni og „walk-in“ sturta. Gluggi hleypir inn náttúrulegri birtu og þaðan er útgengt beint á verönd.
Þvottahús: Rúmgott og vel skipulagt þvottahús með flísum á gólfi. Þar er innrétting með vaski og upphækkun fyrir tvær vélar. Gluggi er í rýminu og innangengt þaðan í bílskúr.
Bílskúr: Sérlega rúmgóður 62,2 m² tvöfaldur bílskúr með epoxy á gólfi. Tvær bílskúrshurðir eru með rafrænni opnun. Inntak og gólfhitagrind eru í bílskúrnum, ásamt snjóbræðslustýringu, hitastýringu og hleðslustöð fyrir rafbíla. Gönguhurð er á móti inngangi hússins og innangengt er úr bílskúr í þvottahús.
Staðsetning
Borg í Grímsnesi er vaxandi byggðakjarni í mikilli uppbyggingu. Frá eigninni er stutt að ganga í helstu þjónustu á Borg, þar á meðal leik- og grunnskóla, sundlaug og íþróttamiðstöð. Selfoss er í um 15–20 mínútna akstursfjarlægð þar sem fjölbreytt verslun og öll helsta þjónusta er til staðar.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
62.2 m2
Fasteignanúmer
2521398
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
25.850.000 kr.
Byggt 2023
138.2 m2
Fasteignanúmer
2521398
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
75.300.000 kr.
Lóðarmat
10.450.000 kr.
Fasteignamat samtals
85.750.000 kr.
Brunabótamat
93.800.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambasel 5
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Lambasel 5
Lambasel 5
109 Reykjavík
308.6 m2
Einbýlishús
835
771 þ.kr./m2
238.000.000 kr.
Skoða eignina Aðalstræti 4
Skoða eignina Aðalstræti 4
Aðalstræti 4
600 Akureyri
335.5 m2
Einbýlishús
844
Tilboð
Skoða eignina Bæjarholt 6
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Bæjarholt 6
Bæjarholt 6
806 Selfoss
190.2 m2
Einbýlishús
423
247 þ.kr./m2
47.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
546 m2
Einbýlishús
855
716 þ.kr./m2
390.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin