Fasteignaleitin
Skráð 19. júlí 2026

Blöndubakki 20

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
110.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
632.579 kr./m2
Fasteignamat
64.900.000 kr.
Brunabótamat
54.250.000 kr.
Eggert Ólafsson
Löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari
Byggt 1971
Jarðhæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2047552
Landnúmer
111850
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Fóðraðar árið 2024
Gluggar / Gler
Tvöfalt
Þak
Þakjárn endurnýjað árið 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
*NÝTT Á SÖLUSKRÁ*
*MIKIÐ ENDURNÝJAÐ OG VIÐGERT HÚS*
*HERBERGI/GEYMSLA Í KJALLARA ER Í ÚTLEIGU*
*NÝTT HARÐPARKET OG ÍBÚÐIN ÖLL NÝMÁLUÐ*
*FJÖLSKYLDUVÆNT HVERFI*
 
Lögheimili eignamiðlun kynnir 110,5 fm., 3ja-4ra herbergja, eign í vel við höldnu fjölbýlishúsi.  Íbúðin, sem er á 1. hæð, er með tveimur svefnherbergjum, en einnig er mögulegt að nýta rúmgóða geymslu í kjallara sem herbergi.  Þriðja herbergið/geymla, í kjallara, er í útleigu, með salernisaðstöðu og sturtu í eigu sameignar.  Birt stærð eignar er samtals 110,5 fm., þar af er geymsla/herbergi 15,9 fm. og  geymsla 5,8 fm., skv. fasteignayfirliti.  Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár.  Sameiginleg lóð er með leiktækjum.  Góð staðsetning þar sem örstutt er í leikskóla, skóla, verslanir og Mjóddina með verslun og þjónustu.

Eignin skiptist í:  Hol, eldhús, stofu, svefnherbergisgang, 2 herbergi,  baðherbergi og þvottarými.  Tvær sérgeymslur eru í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is

Nánari lýsing:
  Komið er inn í bjart hol með fataskáp.  Í eldhúsi er hvít innrétting, flísar milli efri og neðri skápa, borðkrókur og opið inn í hol.  Stofa er með afstúkuðu rými, útgengt á svalir og opin inn í hol.  Í baðherbergi er hvít innrétting, sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt salerni og flísar í hólf og gólf.  Þvottarými er inn af baðherbergi og opið á milli.  Hjónaherbergi er með fataherbergi inn af.  Herbergi er inn af svefnherbergisgangi.  Nýtt harðparket er á gólfum, nema á holi, eldhúsi, baðherbergi og þvottarými þar sem eru flísar.  Tvær sérgeymslur eru í kjallara, önnur nýtt sem herbergi og er í útleigu.  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, er í kjallara.

Annað:  Samkvæmt fasteignayfirliti er birt stærð íbúðar 88,8 fm., geymslur í kjallara 15,9 fm. og 5,8 fm., eða samtals 110,5 fm.  Mögulegt er fyrir kaupanda að yfirtaka leigusamning um herbergi í kjallara. Að meðtöldu herberginu í kjallara eru herbergin samtals þrjú.  Eignin er skráð 3ja herbergja hjá Fasteignaskrá HMS.  Seljandi hefur ekki búið sjálfur í eigninni.
 
Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár og skv. upplýsingum seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað eða viðgert:
Árið 2017 suðurhlið klædd og skipt um glugga. Austurhlið bollaslípuð og filtuð og skipt um alla glugga og málað, austurendi málaður.
Árið 2019 vesturhlið viðgerð, skipt um glugga eftir mati. Norðurhlið viðgerð og máluð og skipt um glugga í stigagöngum.
Árið 2021 skipt um neysluvatnskrana í öllum stigagöngum (heitt og kalt vatn).
Árið 2022 skipt um járn á þaki.
Árið 2024 klóaklagnir fóðraðar og skipt um, eftir þörfum.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.  Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/07/202558.800.000 kr.64.000.000 kr.110.5 m2579.185 kr.
05/02/200718.675.000 kr.19.100.000 kr.110.5 m2172.850 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Helluvað 13
3D Sýn
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Helluvað 13
Helluvað 13
110 Reykjavík
96.2 m2
Fjölbýlishús
312
779 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (305)
1.jpg
Eirhöfði 7a (305)
110 Reykjavík
110.4 m2
Fjölbýlishús
312
887 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (702)
Efsta hæð
1.jpg
Eirhöfði 7b (702)
110 Reykjavík
131.1 m2
Fjölbýlishús
423
1067 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (603)
1.jpg
Eirhöfði 7b (603)
110 Reykjavík
121.1 m2
Fjölbýlishús
413
1107 þ.kr./m2
134.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin