Fasteignaleitin
Skráð 2. jan. 2025
Deila eign
Deila

Sörlaskjól 56

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
90.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
918.051 kr./m2
Fasteignamat
73.300.000 kr.
Brunabótamat
42.750.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1948
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2026664
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Sagi í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Sörlaskjól 56 í Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala kynnir afar fallega, bjarta og vel staðsetta 3-4 herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi við Sörlaskjól 56 í Reykjavík. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni í dag og tvær samliggjandi rúmgóðar stofur og því hægt að nýta aðra stofuna sem þriðja svefnherbergið . Íbúðin er virkilega falleg og sjarmerandi með skemmtilegri gluggasetningu og loftlistum. Gegnheilt parket á gólfum. Sameiginlegur inngangur með einungis einni íbúð. 

Baðherbergið var endurnýjað á smekklegan máta fyrir nokkrum árum. Þá hefur þakið verið endurnýjað ásamt frárennslislögnum frá húsi og út í brunn.  Lóðin er 491,4 fermetrar að stærð, sameiginleg og frágengin. Lóðin er að mestu tyrfð og afgirt með sameiginlegri verönd til suðvesturs. Hellulögð stétt fyrir framan hús að útitröppum. 

Um er að ræða virkilega fallega og vel umgengna íbúð á frábærum og eftirsóttum stað við Sörlaskjól í Reykjavík. Stutt er í allar helstu verslanir, þjónustu, íþróttasvæði, fallegar hjóla- og gönguleiðir við sjávarsíðuna og alla þá menningu sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. 

Nánari lýsing: 
Ytri forstofa: Er sameiginleg með einni íbúð í húsinu. Fallegar upprunlegur terrazzo steinn á gólfi og teppi fyrir innan.
Forstofa/Hol: Með parketi á gólfi og fallegum loftlistum. 
Stofa: Er rúmgóð, björt og með gegnheilu parketi á gólfi. Fallegir gluggar til suðvesturs og vesturs. Stofa er opin bæði inn í hol og borðstofu og myndar skemmtilegt flæði innan íbúðar.
Borðstofa: Með gegnheilu parketi á gólfi og glugga til suðvesturs. Fallegt útsýni út á sundin frá borðstofu.
Eldhús: Með gegnheilu parketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu (endurnýjuð að hluta). Eldavél með keramik helluborði og nýlegri viftu. Lýsing undir efri skápum og tengi fyrir uppvottavél. Gluggi til norður. 
Baðherbergi: Var endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan. Flísar á gólfum og hluta veggja. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask með speglaskáp. Upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og bjart með gegnheilu parketi á gólfi. Skápar og gluggi til vesturs.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi og glugga til suðvesturs. 

Geymsluloft: Er staðsett yfir íbúð á 2. hæð sem tvær íbúðir eiga og hafa aðgengi að.

Sameign: 
Þvottaherbergi:
Er staðsett í kjallara hússins. Málað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð. Þvottasnúrur og gluggi til norðurs. 
Köld útgeymsla: Er staðsett undir útitröppum og er sameiginleg.
Útigeymsla: Sameiginleg í bakgarði (niðurgrafin gömul kolageymsla). 

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/07/202052.900.000 kr.54.900.000 kr.90.3 m2607.973 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grandavegur 42 G
Bílastæði
Opið hús:21. jan. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grandavegur 42 G
Grandavegur 42 G
107 Reykjavík
93.5 m2
Fjölbýlishús
211
929 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 47
Bílskúr
60 ára og eldri
Skoða eignina Grandavegur 47
Grandavegur 47
107 Reykjavík
109.7 m2
Fjölbýlishús
312
719 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Álagrandi 10
Skoða eignina Álagrandi 10
Álagrandi 10
107 Reykjavík
100.1 m2
Fjölbýlishús
312
798 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42B
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Grandavegur 42B
Grandavegur 42B
107 Reykjavík
76.4 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin