Fasteignaleitin
Skráð 2. jan. 2026

Narfeyrarstofa

Atvinnuhúsn.Vesturland/Stykkishólmur-340
316.8 m2
5 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
47.850.000 kr.
Brunabótamat
93.900.000 kr.
Mynd af Kristján Baldursson
Kristján Baldursson
Löggiltur fasteignasali
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2115666
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu - Narfeyrarstofa í Stykkishólmi - til sölu er bæði húsnæði og rekstur.   
 
Til sölu er veitingastaðurinn Narfeyrarstofa við Aðalgötu 3 í Stykkishólmi. Um er að ræða landsþekkt og margrómað veitingahús sem staðsett er á frábærum stað í hjarta  bæjarins. 
Fasteignin er 316,8 fm og er í mjög góðu ástandi bæði að innan og utanverðu. Lagnir hússins hafa allar meira og minna verið endurnýjaðar á undanförnum árum, þ.m.t. frárennslislagnir, neysluvatnslagnir og raflagnir. Ytra byrði hússins er einnig í góðu ástandi, þakjárn var endurnýjað 2023 og klæðning hússins yfirfarin og máluð 2023.
Árið 2022 var ráðist í miklar framkvæmdir við húsið þegar kjallarinn var grafinn út, dýpkaður og þar innréttuð glæsileg vínstúka og móttaka fyrir gesti veitingahússins, við það fjölgaði birtum fermetrum í kjallaranum um ca 90 fm. 

ATH.Hér er á ferð mikið tækifæri í rekstri fyrir réttan aðila. Ráðgert er og liggja fyrir tillögur um að byggja á svokölluðum "Agustssonreit" sem er við hlið Narfeyrarstofu, yfir 100 herbergja hótel ásamt verslunar- og þjónusturýmum. Gera má ráð fyrir að slík framkvæmd hafi þau samlegðaráhrif að starfsemi Narfeyrarstofu muni stóreflast til framtíðar. (Sjá mynd)


Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, kristjan@trausti.is.

Nánari lýsing:  
Aðalhæð: Á aðalhæð hússins er alrými og sæti fyrir 32 gesti. (Möguleiki að koma fyrir allt að 40 gestum í sæti á þessari hæð).  Þrjú glæsileg salerni eru á aðalhæðinni flísalögð í hólf og gólf.
Aftan við barinn er innangengt í litla starfsmannaaðstöðu. Þaðan er gengið inn í viðbyggingu (byggð 2014) og er þar fullbúið eldhús veitingahússins með vönduðum innréttingum og eldunartækjum.
Á neðri hæð viðbyggingar er geymsla fyrir birgðir veitingahússins. Manngengur kælir er einnig á neðri hæð viðbyggingarinnar.  Borð, stólar og bekkir á efri hæðum hússins voru nýlega endurnýjaðir á vandaðan hátt (sérsmíði G.Á.Húsgögn). Einnig voru öll ljós í sölum á efri og neðri hæð endurnýjuð (Epal).Snyrtingar voru einnig nýlega endurnýjaðar

Efri hæð: Alrými með sætum fyrir 42 einstaklinga. Mögulegt er að koma fyrir allt að 55 manns í sæti á efri hæð. Aukin lofthæð að stórum hluta og fallegir viðarþverbitar í lofti. Afar fallegt útsýni er út á Breiðafjörðinn af efri hæðinni. Barborð með góðri vinnuaðstöðu og kælum á gólfi. Innan við barinn er aðstaða fyrir starfsfólk þar sem er einnig salerni og unnt að hafa fataskipti. 

Kjallari: Árið 2022 var ráðist í miklar framkvæmdir við húsið þegar kjallarinn var grafinn út, dýpkaður og þar innréttuð glæsileg vínstúka og móttaka fyrir gesti veitingahússins, við það fjölgaði birtum fermetrum í kjallaranum um ca 90 fm. Hiti er í gólfum í kjallaranum og hefur hann innréttaður á afar glæsilegan hátt, lýsing og stólar eru frá Lumex og sérsmíðaðir bekkir frá GÁ húsgögnum. Veggir í kjallaranum eru að hluta með grunnhleðslu hússins sjáanlegri sem og jarðlögum þar fyrir neðan sem húsið hvílir á og setur það alveg einstakan svip á rýmið. Barinn í kjallaranum er marmaraklæddur. Vönduð flísalögð snyrting er einnig í kjallaranum, upphengt salerni, marmaraborðplata og blöndunartæki innfelld í vegg.  Vegleg útiaðstaða er svo framan við inngang í vínstúkuna og er gengið um steyptar tröppur niður með norðurgafli hússins.

Árið 2014 var byggt við húsið. Viðbyggingin er steypt, 70,2 fermetrar á tveimur hæðum, klædd að utan með furu. Steyptar tröppur eru framan við inngang á neðri hæð viðbyggingarinnar. 
Mjög góð útiaðstaða er sunnan við húsið - timburpallur með aðstöðu fyrir borð og stóla og einnig útitjald með rafmagnshitalömpum og húsgögnum.    Borð, stólar og bekkir á efri hæðum hússins voru nýlega endurnýjaðir á vandaðan hátt (sérsmíði G.Á.Húsgögn). Einnig voru öll ljós í sölum á efri og neðri hæð endurnýjuð (Epal).Snyrtingar voru einnig nýlega endurnýjaðar

Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla við bílastæðið norðan megin við húsið sem snýr að höfninni, um er að ræða 22W hleðslustöð.


Eignin selst með öllu, þ.m.t húsnæði, rekstur ásamt öllu innbúi og fylgifé.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Til leigu
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
300 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Til leigu
3D Sýn
Skoða eignina Bíldshöfði 20
Bíldshöfði 20
110 Reykjavík
1,501 m2
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin