Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Snorrabraut 35 í Reykjavík -auglýst undir fasteignamati. Í kjallara fylgir 11 m² herbergi í útleigu með eldunaraðstöðu sem skilar í dag 85.000 kr. á mánuði, kjörið fyrir kaupendur sem vilja létta á greiðslubyrði (sameiginlegt salerni og sturta fylgja í sameign). Einnig er herbergi húsfélags í útleigu og þar koma einnig beinar tekjur inn í framkvæmdasjóð húsfélags. Íbúðin sjálf er björt með gluggum bæði út í garð og út að Snorrabraut, og út frá svefnherbergi eru rúmgóðar suðaustur-svalir. Húsið er steinsteypt, hefur verið endursteinað og þakjárn endurnýjað, svo viðhaldssagan er í góðu lagi. Staðsetningin er í hjarta miðbæjarins þar sem allt er til alls – gengt Sundhöll Reykjavíkur og í göngufæri við leik- og grunnskóla.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofuhol, tvær stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stúdíórými og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 95,5 m2.**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINASmelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af mjög rúmgóðum teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á stórt parketlagt hol. Innskot er fyrir yfirhafnir.
Herbergi er mjög stórt og með innfelldum viðarfataskápum. Parket á gólfi. Útgengi er út á steyptar SA-svalir.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi með op á milli, en hefur verið lokað með léttum vegg og er annað stofurýmið nýtt sem herbergi í dag. Hægt er að opna að nýju. Parket á gólfi.
Eldhús er með retro innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar, sem og á gólfi. Ofn með helluborði og vifta fyrir ofan. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill með ljósi. Baðkar með sturtu.
Geymsla/Herbergi í útleigu og er 10,7 m2. Gluggi með opnanlegu fagi. Innrétting með vaski á einum vegg.
Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 4,4 m2.
Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar. Þvottasnúrur og skolvaskur. Í þvottahúsi er einnig
sturtuklefi.
Salerni í sameign fyrir útleiguherbergin í kjallara.
Auka herbergi í sameign er í eigu allra. Það herbergi er í útleigu og fara tekjur þess inn í sjóð húsfélags.
Garður er í porti aftan við hús. Grasflötur, malarplan og trjágróður. Ekið inn frá Grettisgötu.
Hjólageymsla er í læstri geymslu úti í garði (undir svölum 1. hæðar).
Áætlað fasteignamat árið 2027: 75.100.000 kr.-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-