Hraunhamar kynnir sérlega smekklega neðri sérhæð í tvíbýlishúsi vel staðsett í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Íbúðin er skráð 141 fermetrar og bílskúr 32 fermetrar samtals 173 fermetrar, auk þess er sér cirka 12 fermetra geymsla í kjallara sem ekki er skráð hjá HMS.
Húsið stendur á rúmgóðri og fallegri hornlóð,við Blómvanginn, frábær aðkoma og næg bílastæði. Húsið er mikið endurnýjað að utan. Góð staðsetning í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Hæðin er björt, gott skipulag, fallegt flæði í alrými með utangengt út á stóran trépall. Skipting eignarinnar: Forstofa, gestasalerni, hol, stofa, borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi (fjögur herbergi á teikningu), baðherbergi og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskápum. Innaf forstofu er
gestabaðherbergi.Rúmgott
hol. Björt og fín
stofa og borðstofa. Eldhús með smekklegri innrétttngu, eyja.
Þvottahús með innréttingu og glugga.
Hjónaherbergi með fataskápum.
Rúmgott s
vefnherbergi, voru tvö áður, auðvelt að breyta þeim í tvö herbergi.
Gott
svefnherbergi.Flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og handklæðaofn.
Frá holi er utangengt út í garðinn er verönd með skjólgirðingu.
Bílskúr með hita og rafmagni, nýleg rafdrifn bílskúrshurð.
Ytra umhverfið: Húsið er lítur vel út að utan, falleg lóð með grasföt og trjágróðri og beðum. Næg bílastæði. Aðkoma (bílastæði) að húsinu að norðanverðu og sunnanverðu.
Hiti í hellulögðum göngustígum og hiti í bílaplani. Falleg hornlóð.
Það þarf að yfirfara glugga og gler. Skv. eldra söluyfirliti var húsið sprunguviðgert og málað 2019 og þak var lagfært, endurnýjuð einangrun, pappi og járn á þaki.
Þetta er smekkleg eign á þessum vinsæla stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali í s.698-2603 eða í gegnum tölvupóst á hlynur@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.