Fasteignaleitin
Skráð 2. júlí 2025

Vegghamrar 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
100.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
743.056 kr./m2
Fasteignamat
70.650.000 kr.
Brunabótamat
47.150.000 kr.
Mynd af Ævar Örn Jóhannsson
Ævar Örn Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2038887
Landnúmer
109110
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað gler, sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Þak
Endurnýjað að hluta, sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
3,63
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Yfirferð á tréverki framan á húsinu. Viðhaldið er greitt af húsfélaginu. 
-Sérinngangur
-Suðursvalir og sólskáli
-Þvottahús innan íbúðar
-Sérmerkt einkabílastæði


Íbúðin er skráð 100,8 fm samkvæmt HMS.
Hún er á 2. hæð með sérinngangi á góðum stað í Hamrahverfinu í Grafarvogi.
Tvö stór svefnherbergi eru í íbúðinni með möguleika á þriðja.
Um 6 fm geymsla sem breytt hefur verið í fataherbergi er með glugga með opnanlegu fagi og gæti hæglega verið nýtt sem rúmgott barnaherbergi.
Alrými er bjart með sólskála og suðursvölum og útsýni.
Geymsluloft er fyrir ofan íbúðina.
Alrými er flísalagt en svefnherbergi eru parketlögð.
Gler hefur verið endurnýjað, bæði að sunnan og norðanverðu.
Snjóbræðslukerfi í tröppum og stétt við hús – mikil þægindi yfir vetrartímann.

Skjólsæl og barnvæn staðsetning þar sem stutt er í skóla, þjónustu og fallega náttúru.

Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf s: 861-8827 / aj@palssonfasteignasala.is

Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 / palli@palssonfasteignasala.is 

Skipulag eignarinnar:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Geymsla með dúk á gólfi – í dag nýtt sem fataherbergi.
Stofa/ borðstofa mynda opið og bjart alrými sem tengist fallegum sólskála með útgengi út á góðar suðursvalir. Parket á gólfum.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi – praktísk vinnuaðstaða með glugga sem gefur góða birtu.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í gólf og veggi og búið innréttingu með handlaug, upphengdu klósetti, handklæðaofni og rúmgóðri sturtu. 
Þvottahús með glugga og góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Háaloft með talsverðu geymslurými. 
Tvö sameiginleg geymslurými. Annað er undir útitröppum og hitt að framanverðu.

Skipt um þakrennur og niðurfallsrör fyrir árið 2011.
Þakið var málað fyrir um 9 árum.

Eignin er staðsett á rólegum botnlanga í Grafarvogi, í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. 
Leik- og grunnskóli eru í göngufæri og næstu matvöruverslanir eru í Spönginni og við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða.
Falleg útivistarsvæði og gönguleiðir eru í næsta nágrenni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/06/201118.650.000 kr.25.500.000 kr.100.8 m2252.976 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin