FS fasteignir – 571-9992Ljómatún 9 202, 600 AkureyriFalleg, vel skipulögð og skemmtileg 100 m
2 4ra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli með flottu útsýni. Stutt í leik- og grunnskóla, gönguleiðir um Naustaborgir, golfvöll og matvöruverslun.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi auk geymslu sem nýtist sem svefnherbergi af núverandi eigendum, eldhús og stofu í opnu rými með opnar svalir til suðurs og sameiginlega geymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Þvottahús er inn af forstofunni, þar eru flísar á gólfi, opnanlegur gluggi í norður, inrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og gott skápapláss.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á hluta veggja, ljós innrétting með góðu skápaplássi, krómaður handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu.
Herbergin eru þrjú:
- Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp, harðparket á gólfi og tveimur gluggum til suðurs.
- Svefnherbergi er rúmgott, þar er harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til norðurs.
- Geymsla nýtist í dag sem svefnherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur og gluggi til suðurs.
Eldhús er í opnu rými með stofu, þar er harðparket á gólfi, hvítar flísar á hluta veggja, falleg grá innrétting frá TAK með góðu skápaplássi og borðplata með viðarútliti, bakaraofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél og gluggi í norður með flottu útsýni út fjörðinn.
Stofa er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og góðum gluggum, þar er útgengt á stórar opnar svalir til suðurs.
Geymsla er ca. 8 m
2 í sameign á jarðhæð.
Annað:- Mikið endurnýjuð og snyrtileg eign.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni og snjóbræðsla í inngangsstétt og stiga.
- Ljósleiðari tilbúinn.
- Sérmerkt bílastæði fyrir framan hús.
- Framkvæmdir síðustu ára:
- 2026: Gólfefni á alrými og svefnherbergjum tekið og lagt nýtt parket og lista, skápur tekinn úr eldhúsi og settar nýjar flísar fyrir ofan innréttingu, nýir rafmagnslokar á gólfhitann, allt málað nema baðherbergi, þvottahús og hjónaherbergi. Búið að panta ný dimmanleg LED ljós í alrými.
- 2025: Nýr bakaraofn keyptur í desember 2025.
- 2024: Hleðslustöðvar fyrir rafbíla settar upp.
- 2021: Hús málað að innan 2021, skipt um blöndunartæki inni á baðherbergi og sett upp sjálfvirk snjallvifta.
- 2020: Pappi lagður á þakið.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.