Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna: Vandaða þriggja herbergja íbúð í nýlegur húsi við Smyrilshlíð 13, 102 Reykjavík. Tvö svefnherbergi, vandaðar innréttingar og tæki, Quarts á borðum, aukin lofthæð, innfelld lýsing, gólfsíður gluggar og stæði í bílakjallara. Skjólgóður gróinn garður. Vönduð og falleg eign í góðri staðsetningu sem vert er að skoða.
Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.isNÁNARI LÝSING:
Alrými telur stofu, eldhús og borðstofu, bjart með aðgengi að suðursvölum, vönuð innrétting með góðu skápa og borðplássi, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, Miele tæki. Quarts borðplata frá Granítsmiðjunni.
Hjónaherbergi snýr að garði, góðir skápar sem ná upp í loft, gólfsíðir gluggar og viðrunarsvalir.
Herbergi snýr að garði, tvöfaldur skápur sem nær upp í loft, gólfsíður gluggi.
Baðherbergi er rúmgott með sturtu, góðri innréttingu með Quarts borðplötu, hreinlætistæki frá Tengi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baði.
Svalir eru skjólgóðar og snúa í suður.
Geymsla er aðgengileg frá sameign.
Bílastæði í bílastæðahúsin merkt 237 fylgir eigninni.
Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður, snjóbræðsla er í gönguleiðum, leiktæki og fallegur gróður.
Eignin Smyrilshlíð 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-9131, birt stærð 85.9 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-37, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.