SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á GÓÐU VERÐI*- * VANDAÐUR HÚSGAGNAPAKKI OG RAFMAGNSTÆKI FYLGIR*
Nýjar vel skipulagðar flottar íbúðir á góðum stað, hægt er að velja um jarðhæð með sér garði, mið hæðir með stórum svölum eða penthouse með stórum svölum og sér þaksvölum. Flottur sundlaugargarður á móti suðri og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábæru verði. Um 45 mín akstur suður frá Alicante.
Glæsilegar íbúðir með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sérbílastæði í bílakjallara og geymsla fylgir.
Stutt er í alla helstu þjónustu, verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard, úrval veitingastaða, fallegar strendur og ótal góða golfvelli.
Raftæki og vandaður húsgangapakki fylgir öllum íbúðum, þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 477.Sennilega ein bestu kaupin á svæðinu í dag.Nánari lýsing:
Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Sérlega vandaðar og fallegar íbúðir.
Mikið innifalið
Stæði í bílakjallara og geymsla
Sundlaugargarður, líkamsræk.
Leiksvæði fyrir börnin
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun
Fjarstýrðar rafmagnsgardínur
Innbyggð lýsing
Húsgögn og heimilistæki fylgja, þmt. kaffivél, brauðrist og hárþurrka.
Sem sagt, allt sem þarf til að flytja inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.Alicante flugvöllur er í ca. 45 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK:
Íbúð með tveimur svefnherb. + tveimur baðh. Verð frá 259.000 Evrum (ISK 37.500.000) + 10%skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.
Íbúðirnar afhendast tilbúnar í mars - maí 2026.
Þessar íbúðir eru að seljast mjög vel.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sér garður, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, geymsla, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Los Altos,