Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2025

SPÁNAREIGNIR - Punta Prima

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
92 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
41.100.000 kr.
Fermetraverð
446.739 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
103020726
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR NOKKRUM SKREFUM FRÁ PUNTA PRIMA STRÖNDINNI*  *GÖNGUFÆRI Í VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Vandaðar og fallegar 3ja herb. íbúðir, 2 svefnh. + 2 baðh. í lyftublokk á frábærum stað við Punta Prima ströndina, stutt frá La Zenia Boulevard og Torrevieja, ca. 40 mín akstur í suður frá Alicante flugvelli. Aðeins nokkur skref á ströndina. Fallegur, gróinn sundlaugargarður. Frábærir veitingastaðir í örstuttu göngufæri. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð við sjóinn.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. Sími 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869

Nánari lýsing:

Um er að ræða glæsilegar 3ja herb. íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýlishúsi rétt við Punta Prima ströndina.  Grænt og fallegt umhverfi í vel hönnuðum sundlaugargarði. Sundlaug, heitur pottur, leiksvæði fyrir börnin, góð aðstaða fyrir slökun og hvíld, líkamsrækt og endurnæringu líkama og sálar. Örstutt göngufæri á ströndina, þar sem hægt er að busla í sjónum eða setjast niður á skemmtilega veitingastaði. Nautilus og Punta Prima restaurant veitingastaðirnir eru í ca. 2-5 mín göngufæri og ca. 10 mín göngufæri á Asia Kitchen og fleiri góða veitingastaði við Punta Prima hringtorgið.

Íbúðin er rúmgóð með tveimur svefnherbergjum þe. rúmgóðu hjónaherbergi með sér baðherbergi og öðru svefnherbergi og baðherbergi. Góð stofa/alrými og fallegt eldhús. Góðar svalir. Einnug eru til sölu íbúðir á jarðhæð með sér garði, og hægt er að fara á biðlista eftir íbúðum með þaksvölum þegar næsti áfangi kemur í sölu. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Stæði í bílakjallara fylgir ásamt sér geymslu. Hægt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum gegn aukagjaldi.

Aðeins nokkur skref eru á fallega strönd sem liggur að Miðjarðarhafinu og þaðan eru göngu og hjólreiðastígar til Torrevieja og Playa Flamenca, La Zenia ströndina og Cabo Roig ströndina. Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri á Punta Prima svæðinu. La Zenia Boulevard,  glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða er í ca. 5 mín. akstursfjarlægð. Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 10 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð: Íbúð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum: frá 284.000 Evrum + kostn. við kaupin.
Á sama stað eru líka til íbúðir með 3 svefnh. + 2 baðh. 
Íbúðirnar eru í byggingu og afhendast í febrúar 2028.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, ný eign, 
Svæði: Costa Blanca, Punta Prima,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103020726
Fasteignanúmer
103020726

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæland 6
Efsta hæð
Opið hús:15. nóv. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Snæland 6
Snæland 6
108 Reykjavík
97,4 m2
Fjölbýlishús
513
841 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 56
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kleppsvegur 56
Kleppsvegur 56
104 Reykjavík
84,7 m2
Fjölbýlishús
413
802 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 11
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Eskivellir 11
Eskivellir 11
221 Hafnarfjörður
91,5 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Melhólar 3
Á einni hæð
Opið hús:16. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Melhólar 3
Melhólar 3
800 Selfoss
77,2 m2
Raðhús
312
758 þ.kr./m2
58.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin