Fasteignaleitin
Opið hús:25. mars kl 17:00-17:30
Skráð 20. mars 2026

Naustavör 66

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
158.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
172.900.000 kr.
Fermetraverð
1.090.852 kr./m2
Fasteignamat
135.600.000 kr.
Brunabótamat
97.370.000 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
2519391
Landnúmer
231785
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu NAUSTAVÖR 66 ÍBÚÐ 303, 200 Kópavogur.

Fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi, við sjávarsíðuna á Kársnesinu, sér geymsla í sameign og sér merkt bílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu, tvennar svalir. Smellið hér fyrir staðsetningu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.

Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi og holi, hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi inn af, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Í sameign: Sér geymsla og sér bílastæði B-59 í kjallara, inngangur, stigi og lyftuhús, hjóla- og vagnageymsla.

Húsið er steypt á fjórum hæðum, byggt árið 2024, eignin skiptist í íbúð 137,1m², geymslu 21,7m² og bílastæði samtals 158,5m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Nánari lýsing:

Anddyri, fjórfaldur fataskápur, innangengt er í herbergi og baðherbergi og þvottahús frá anddyri.

Alrými, stofa, borðstofa eldhús og hol í opnu rými, útgengt er út á svalir frá stofu (norðvestur) og frá borðstofu (suður).

Eldhús: Innrétting með eyju, spahelluborð með innbyggðri viftu, ofn og ofn/örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystiskápur, í innréttingu.

Herbergi I, hjónasvíta, fataherbergi með fataskápum, þaðan er innangengt á baðherbergi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápar, upphengt salerni og sturta, handklæðaofn, rafræn loftun.

Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápar, upphengt salerni og sturta, handklæðaofn, rafræn loftun.

Þvottahús: Innrétting með skápum og vinnuborði, vaskur í borði, pláss fyrir tvær vélar í innréttingu.

Gólefni: Flæðandi parketflísar eru á öllu gólfum nema á baðherbergjum og í þvottahúsi þar eru flísar. Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Allar innréttingar eru frá Brúnás, eldhústæki AEG frá Ormsson, blöndunartæki frá Tengi.

Naustavör 60-66 er steypt hús, fjórar hæðir auk kjallara, byggt árið 2024, húsið er klætt að utan með áklæðningu að mestu. Steypt þakplata með vatnshalla að niðurföllum, vatnsvarnardúkur með öndun og farg á þaki. Gluggar eru áklæddir timburgluggar og hurðar. Malbikað bílaplan er við húsið og hellulögð gangstétt með hitalögn er að inngangi. Lóð er gróin/frágengin.

Lóð, 6.243 m² leigulóð í eigu Kópavogskaupstaðar, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 1. desember 2021, skjal nr. 441-E-002292/2022.

Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun, góð staðsetning, útsýni.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Símsvörun alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/2025123.600.000 kr.169.900.000 kr.158.5 m21.071.924 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2519391
Byggingarefni
Steypt
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.120.000 kr.

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 10
Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
233.5 m2
Fjölbýlishús
413
1435 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Dvergaholt 9 íbúð 211
Bílastæði
Dvergaholt 9 íbúð 211
603 Akureyri
76.7 m2
Fjölbýlishús
312
897 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Hjallabraut 47A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
43
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin