Skráð 16. júní 2025

Merkjagróf 2

SumarhúsNorðurland/Akureyri-607
88.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
767.232 kr./m2
Fasteignamat
18.550.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2008
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2318751
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Hitaveita : 19.000.-
Rafmagn : 5.300.-
Fasteignagjöld : 19.000.- x 8 
Lóðarleiga : 162.000.- x 1 
Gallar
Eignin er ekki með lokaúttekt og er skráð sem fokheld, teikningar af kjallara eru ekki eins og skipulag er í dag.
Kasa fasteignir 461-2010.

Merkjagróf 2, Hróarsstaðir - Fnjóskadalur. Um er að ræða bjartan og fallegan 88,5 fm 4 herbergja sumarbústað með stórum sólpalli, verkstæði, pottasvæði og hjólhýspalli í Fnjóskadal, aðeins 12 mínutúm frá Akureyri. Húsið stendur á frábærum stað með miklu útsýni yfir Fnjóskadalinn. Svæðið er allt hið vandaðasta og frágangur til fyrirmyndar. Nýtanlegir fermetrar eru þónokkuð fleiri en skráðir eru.

Bústaðurinn sjálfur er skráður 40,5 fm og skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi og svefnloft.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Stofa og eldhús er með parketi á gólfi, eldhúsinnrétting úr við, eldavél með bakaraofni, ísskápur og örbylgjuofn er í innréttingu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi. Lítil innrétting með vaski. Sturtuklefi og vegghengt salerni.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parketi á gólfum.
Svefnloft er með timburbólfi, stigi er frá alrými upp á svefnloft.
Gólfhiti er í öllum rýmum hæðarinnar.

Kjallarinn er með sér inngang og er skráður 48 fm en er í raun ca 71,8 fm. Rýmið er skráð geymsla í dag en lítið mál er að innrétta það sem íbúð eða vinnustofu. 
- Sér inngagur er í rýmið að utan.
- Stór rennihurð er einnig í rýminu.
- Gólfhiti er í öllum rýmum kjallara. 
- Búið er að leggja fyrir vatni og skólpi.
- Gluggar og hurðar eru viðhaldsfríir plast/ál.
- Flísar á allt rýmið fylgir með við sölu ásamt einhverju byggingarefni.
- Sér lokað lagnarými er partur af kjallara, inn í hann er gengið að utan, þar er einnig skolvaskur.

Verkstæðið er c.a 36 fm og er byggt inn í brekkuna við bílaplan.
- Verkstæðið er ekki skráð inn í heildar fermetra eignar.
- 3 Fasa rafmagn.

Annað:
- Bústaðurinn er bjálkahús sem er einangarð að utan og klætt með standi timbur klæðningu. Húsið stendur á steyptum kjallara.
- Pottasvæðið er með hitaveitupotti og útisturtu, sem er stýrt með stýringu sem er inni í aðalhúsinu.
- Búið er að smíða pall þar sem t.d er hægt að leggja hjólhýsi eða húsbíl. Heitt og kallt vatn er við pallinn.
- Steyptir stoðveggir eru víðsvegar á svæðinu ásamt drenlögnum í plani.
- Hitaveita er á svæðinu.
- Lóðin er leigulóð og er 3800 fm. Lóðarleiga með vatnsgjaldi er 162.000.- á ári.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á sigurpall@kasafasteignir.is eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á helgi@kasafasteignir.is eða í síma 666-0999.
Sibba á sibba@kasafasteignir.is eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á ester@kasafasteignir.is eða í síma 661-3929. 

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin