Fasteignaleitin
Opið hús:06. okt. kl 16:45-17:15
Skráð 2. okt. 2026

Vesturás 28

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
235.4 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
157.900.000 kr.
Fermetraverð
670.773 kr./m2
Brunabótamat
83.000.000 kr.
Byggt 1987
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20465111
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir kynna í einkasölu: Fallegt raðhús innst í botnlanga við Vesturás 28 í Árbænum. Húsið er á pöllum og eru fimm svefnherbergi.  Einnig er mögulegt að úbúa rúmgóða 3ja herbergja íbúð á jarðhæðinni. Fallegt útsýni er af efri hæðum til suðurs og vesturs. Nýlegir sólpallar eru báðum megin við húsið, sá sem er sunnanmegin er með frábærri útiaðstöðu m.a. heitur og kaldur pottur, infrarauð sauna, útisturta o.fl.  Fullbúinn bílskúr. Frábær eign á vinsælum stað í Reykjavík.

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is 


Komið er inní forstofu með flísum á gólfi og er uppgengið upp á efri hæð. Björt og rúmgóð parketlögð stofa, mikil lofthæð, fallegur arinn og útgengt út á vestursvalir með einstaklega fallegu útsýni. Stofan er opin við borðstofu og eldhús. Borðstofan er með þaki úr gleri sem gefur einstaka birtu inn í rýmið.  Eldhúsið er með parketi á gólfi og ágætri eldri innréttingu. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og innrétting. Gengið er niður á pall þar sem eru tvö barnaherbergi, bæð parketlögð. Einnig er stórt hjónaherbergi, hægt er að ganga frá því út á svalir og þaðan niður á sólpallinn sem er á bak við húsið.
Úr forstofunni á jarðhæðinni er gengið inn í íbúðarrými þar sem hægt væri að hafa séríbúð (var áður þannig) með sérinngangi.  Rúmgott þvottahús með útgangi út veröndinni fyrir framan húsið (gæti verið eldhús). Snyrting með físum á gólfi og er nýleg sturta í rými við hliðina.Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi. Inn af öðru herberginu er rúmgott parketlagt fataherbergi eða geymsla og er útgengt þaðan út á pallinn á baklóðinni. Gólhiti er í herbergjum á jarðhæðinni. Á baklóðinni hefur verið útbúin sérlega skemmtilega útiaðstaða. Þar er stór heitur pottur, kaldur pottur, góð útisturta, rúmgott infrarautt saunahús ásamt stórum sólpöllum. 
Bílskúrinn er með máluðu gólfi, heitu/köldu vatni. Hiti er í hellulagðri innkeyrslu, en hún rúmar nokkra bíla. Fyrir framan húsið er nýlegur aflokaður sólpallur. 

Húsið er staðsett innarlega í botnlanga í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Árbæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi Fylkis. Einstaklega góðir útivistarmöguleikar eru í næsta nágrenni, meðal annars í Elliðaárdal og við Rauðavatn, þar sem finna má fallegar göngu- og hjólaleiðir og fjölbreytta náttúru. Þá er stutt í Árbæjarlaug og aðra þjónustu í Árbæ. Hverfið sameinar þannig á skemmtilegan hátt rólegt og gróið íbúðarumhverfi, nálægð við náttúruna og gott aðgengi að allri helstu þjónustu.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 501
Bílskúr
Opið hús:03. okt. kl 12:00-12:30
Hnjúkamói 14 íb. 501
815 Þorlákshöfn
241 m2
Fjölbýlishús
4
385 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Flúðasel 76
Efsta hæð
Skoða eignina Flúðasel 76
Flúðasel 76
109 Reykjavík
140.1 m2
Fjölbýlishús
413
556 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshólar 6
Skoða eignina Smyrilshólar 6
Smyrilshólar 6
111 Reykjavík
84.6 m2
Fjölbýlishús
312
743 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Básbryggja 3
Bílastæði
Skoða eignina Básbryggja 3
Básbryggja 3
110 Reykjavík
130.6 m2
Fjölbýlishús
614
681 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin