Miklaborg kynnir: Glæsileg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með mikillri lofthæð, fallegum innréttingum, vönduðum tækjum og einstaklega gott skipulag þar sem hver einasti fermeter nýtist mjög vel. Í boði er að flest allt innbú fylgi með í kaupum. Harðparket er á gólfum utan baðherbergis sem er með fallegum flísum. Þetta er einstök miðbæjaríbúð.
Samkvæmt nýjustu ákvörðunum borgarráðs eru miklar breytingar á Hlemmsvæðinu framundan, bæði í kringum og fyrir ofan mathöllina, sem munu umbreyta ásýnd svæðisins. Hlemmtorg verður hannað sem nútímalegur og vistvænn borgarkjarni. Almenningssamgöngur munu verða eina akandi umferðin um torgið, og rými fyrir gangandi ásamt hágæða aðstöðu fyrir hjólandi vegfarendur verður stórbætt. Framundan er því jákvæðar skipulagsbreytingar sem munu hafa jákvæð áhrif á svæðið í kring bæði hvað varðar eftirspurn á íbúðum sem og lífsgæði þeirra sem þar búa.
Íbúðin sjálf er skráð 51,4 fm og til viðbótar er 6,2 fm geymsla í kjallara sameignar, séreign er því samtals 57,6 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið inn í rúmgott anddyri með miklum fataskápum sem ná upp í loft.
Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar og einstaklega falleg Marrakech flísalögn á milli skápa sem gefa mikin svip. Led lýsing undir efri hillur að hluta falleg borðplata og vönduð tæki en um er að ræða innbyggðan ísskáp með frysti ásamt uppþvottavél, ofn og helluborð með hangandi háf yfir. Vel hannað eldhús með góðu vinnuplássi.
Stofa: Björt stofa þar sem lofthæðin nýtur sín mjög vel með björtum gluggum.
Þvottaherbergi: Innan íbúðar gegnt baðherbergi.
Baðherbergi: Stílhreint með fallegri flísalögn á gólfi sem og veggjum. Sturta með gler skilrúmi, skápainnrétting undir og yfir handlaug og upphengd salernisskál.
Svefnherbergi: Snýr í átt að bakgarð og er með stórum fataskápum.
Í kjallara sameignar er rúmgóð sérgeymsla undir tröppum frá jarðhæð. Sameiginlegt þvottahús þar sem íbúðin hefur sitt stæði en eins og sagt var frá hér að ofan er þvottaherbergi innan íbúðar, með tengi fyrir þvottavél og gott pláss fyrir þurrkara.
Bílastæði eru í bakporti þar sem er fallegur garður (Skúlagarður) þar sem börn geta leikið sér og aðrir notið náttúrunnar í góðu skjóli í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 61.9 | 61,9 | ||
105 | 54.2 | 61,3 | ||
105 | 59 | 59,8 | ||
105 | 53.3 | 62,5 | ||
105 | 51.8 | 62,5 |