BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FÍFUMÓI 5 ÍBÚÐ 101, 800 Selfoss. Þriggja herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýlishúsi í nýlegu hverfi á Selfossi. Vel skipulögð íbúð á vinsælum stað, stutt í alla almenna þjónustu og útivist.
Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús og geymsla (nýtt sem svefnherbergi).
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofuhluta út á timburverönd til norð-vesturs með skjólveggjum.
Eldhús, L-laga innrétting, Husqvarna spanhelluborð (2023), háfur, AEG ofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu, Electrolux uppþvottavél og Samsung ísskápur geta mögulega fylgt.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Svefnherbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta, baðkar, vegghengt salerni, vaskinnrétting.
Hiti er í gólfi á baðherbergi, hitastýring á vegg.
Þvottahús, stálvaskur skápur undir vaski, veggskápur, pláss fyrir tvær vélar ofan á borði.
Geymsla, er nýtt sem svefnherbergi í dag, innbyggt „svefnloft", gluggi.
Gólfefni: Harðparket er á alrými og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Húsið er forsteypt fjögurra íbúða hús á tveimur hæðum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt inntaksrými er undir stiga upp á efri hæðinna. Hellulagt er frá bílastæðum að inngangi íbúðar. Bílastæði við húsið eru malbikuð.
Sorptunnuskýli stendur við húsið. Sérnotareitur eignarinnar er afgirtur lokaður, timburverönd og gras er á sérnotareit.