BJÖRT 3JA HERBERGJA, VEL SKIPULÖGÐ ENDAÍBÚÐ Á 1. HÆÐ MEÐ SÉR INNGANGI AÐ FOSSVEGI 2 SELFOSS. STÓR VERÖND, GEYMSLA INNAN ÍBÚÐAR TVÖ STÓR HERBERGI (11,9fm og 11,3 fm).
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Snorri Snorrason lgf, sími:895-2115, kynna: Mjög vel skipulögð 95 fm 3 herbergja enda íbúð í fjöleignahúsi að Fossvegi 2 Selfossi,
Eignin skiptist í : Forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Parket hefur verið pússað upp og lakkað, eldhúsinnrétting er lökkuð og með endurnýjuðum borðplötum, vask, helluborði og ofn
NÁNARI LÝSING : Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur. Gangur, parket á gólfi. Eldhús parket á gólfi, lökkuð rúmgóð innrétting með spansuðuhelluborði, nýr bakaraofn og eldri vifta. ísskápur og uppþvottavél fylgja með ( óvíst um aldur og endingu en í góðu lagi)
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgegi á 28 fm pall með sérafnotarétti
Hjónaherbergi, (11,9 fm) er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi (11,3 fm) er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp
Baðherbergið, flísar á gólfi, nýr sturtuklefi, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting.
Þvottavélatengi er innan baðherbergis og innfellt í innréttingu.
Geymsla (6 fm) með hillum er innan íbúðar.
Bifreiðastæði er sameiginlegt og malbikað
Lóð er sameiginleg.
Hjóla og vagnageymsla er á sömu hæð, bæði út á lóð í suður og inn frá bílastæði.
Tækjarými er inn af hjólageymslu.
Húsfélagið er með ,,rafhleðslustöð". Göngufæri er í skóla og aðra þjónustu bæjarins.