BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HEIÐARSTEKKUR 9B, 800 Selfoss. Fjögurra herbergja á efri hæð til vinstri í fjórbýlishúsi í nýlegu hverfi á Selfossi.
Stutt í alla almenna þjónustu s.s. grunnskóla og leikskóla (næstu götu). Smellið hér fyrir staðsetningu. Íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi, samtals 92.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr alrými út á vestursvalir 7,2 m².
Eldhús, HTH innrétting, AEG spanhelluborð og AEG ofn í vinnuhæð, innbyggð Electrolux uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi er með fjórföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, bæði þeirra eru með tvöföldum fataskápum.
BaðherbergI, sturta, upphengt salerni, vask innrétting frá HTH, veggskápar, handklæðaofn, flísalagt er á vegg í sturtuhorni.
Þvottahús/geymsla eru í sama rými, innrétting með plássi fyrir tvær vélar undir borði, stálvaskur og efri skápar, inntök eru í geymslu, rafmagnstafla er í geymslu.
Gólfefni: Flæðandi harðparket er á alrými og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.
Innbyggð lýsing er í alrými. Allar innréttingar í íbúð eru frá HTH nema fataskápur í anddyri, hvítir veggskápar á baðherbergi og efri skápar í þvottahúsi. Innihurðar eru yfirfelldar hvítar frá Birgissson.
Húsið Heiðarstekkur 9-11 er forsteypt einingarhús á tveimur hæðum með fjórum íbúðum. Húsið er málað að utan. Sameiginlegt inntaksrými er á neðri hæð undir stiga á milli íbúða.
Á lóðinni eru alls 9 bílastæði, malbikuð, lóðin er frágengin. Lóðin er 848,4 m² sameiginleg leigulóð.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 251-1440.Stærð: Íbúð 92,0 m².
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Steypa