Fasteignaleitin
Skráð 30. ágúst 2026

Stíflusel 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
86.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
692.486 kr./m2
Brunabótamat
45.850.000 kr.
Byggt 1977
Jarðhæð
Pallur
Baðkar
Fasteignanúmer
20548172
Húsgerð
Fjölbýlishús

Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali, og EV fasteignasala slf. kynna vel skipulagða og bjarta 86,5 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með stórum suðurpalli. Um er að ræða notalega eign með góðu skipulagi þar sem útisvæðið nýtist einstaklega vel.

Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum, meðal annars var farið í múrviðgerðir og húsið málað, auk þess sem skipt var um hluta af gluggum. Skipt var um þak 2023. Sameign og stigagangur eru snyrtileg og vel umgengin.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu í sameign. Frábær staðsetning í Seljahverfi þar sem leik- og grunnskóli eru í göngufæri, ásamt fjölbreyttri þjónustu og íþróttasvæði.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er heildarstærð eignarinnar 86,5 fm, þar af er íbúðin 74,2 fm og sérgeymsla í sameign 12,3 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Harðparket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari með sturtu, baðinnréttingu með góðu skápaplássi, vaski og spegli.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á rúmgóðan pall til suðurs. Harðparket á gólfi.
Eldhús:  Innrétting með góðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Sérgeymsla: 12,3 fm sérgeymsla í kjallara.

Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Að hluta til er íbúðin í upprunalegu ástandi og því tækifæri fyrir nýja eigendur að endurnýja eftir eigin smekk. Búið er að samþykkja í húsinu að gera ástandsskýrslu og mun seljandi greiða það.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali
Sími 840 0314
einar@provobis.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Pro vobis ehf.
https://provobis.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðavað 13
Opið hús:01. des. kl 12:15-12:45
stebbi_vefur.jpg
Skoða eignina Rauðavað 13
Rauðavað 13
110 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
211
811 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 102F
Efsta hæð
Skoða eignina Hraunbær 102F
Hraunbær 102F
110 Reykjavík
78,9 m2
Fjölbýlishús
312
754 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 12
Bílastæði
Skoða eignina Strandvegur 12
Strandvegur 12
210 Garðabær
99 m2
Fjölbýlishús
312
908 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Bílastæði
Opið hús:29. nóv. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
85,9 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin