Nýlegt einbýli á einni hæð með bílskúr við Bakkatröð í Hrafnagilshverfi - samtals 171,4 m² og þar af telurbílskúr 28,3 m²
Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, bílskúr og geymsluskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og ljósum fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa eru í einu opnu alrými hvar ljóst harðparket er á gólfum og upptekin loft með innfelldri halogen lýsingu. Gólfsíðir gluggar eru í stofu og alrýmið heilt yfir mjög opið og bjart. Eldhúsinnrétting er hvít háglans og með stórri eyju með eldavél og vaska. Út úr borðstofu er farið út á steypta verönd. Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum. Eitt herbergjanna er skráð sem geymsla á teikningum. Baðherbergin eru tvö. Bæði baðherbergin eru flísalögð og bæði með sturtum. Aðalbaðherbergið er mjög rúmgott og með stórri opinni sturtu með gleri, og opnanlegum glugga. Í minna baðherberginu er sturtuhorn og í báðum eru ljósar innréttingar, opnanlegir gluggar og upphengd wc. Bílskúrinn er flísalagður og þar er ný innkeyrsluhurð. Þvottahús er flísalagt. Geymsluloft er yfir húsinu að hluta og rúmgóður geymsluskúr með rafmagni í er framan við húsið Garðurinn er snyrtilegur. Framan við bílskúr er steypt bílaplan og hellulögð stétt heim að aðalinngangi og hellulögð verönd í kringum heitan pott. Steypt verönd er svo við suð-vesturhorn hússins og steyptir skjólveggir með timburverki ofaná. Hellulögð stétt nær norður fyrir húsið og þar er einnig lítil verönd með skjólveggjum.
Annað - Ljósleiðari er kominn inn og tengdur. - Vélrænt útsog er á báðum baðherbergjum. - Snjóbræðsla er framan við húsið og að heita pottinum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.