Jörfabakki 20 íbúð 201, 109 Reykjavík er vel skipulögð
samtals 89,6 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli. búðin sjálf er
75 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, þvottaaðstöðu með rennihurð ásamt
11,4 fm aukaherbergi í kjallara og
3,2 fm geymslu. Skjólgóðar
suðursvalir út frá stofu. Vel viðhaldið fjölbýli og mjög snyrtilegt. Vel hirt lóð og nýleg leiktæki.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fatahengi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Eldri innrétting, ljós borðplata, gat fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Samliggjandi rými. Parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á góðar suðursvalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum opnum fataskápum. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi: Gott herbergi með góðum opnum fataskáp. Dúkur á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt nýlega uppgert, Upphengt salerni, Vaskaskápur, walk in sturta. Handklæðaofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Aukaherbergi í kjallara: Gott
herbergi, gluggi með opnanlegu fagi. Herbergið deilir aðgengi að salerni með sturtu á sameign.
Geymsla: Í kjallara er sérgeymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.
Á lóð er gott leiksvæði fyrir börn, leik- og grunnskóli er við hliðina á húsinu ásamt því að stutt er í alla helstu þjónustu í Mjóddinni.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang fasteignir@procura.is eða í síma 497 7700
- - -
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda: Opinber gjöld vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.