Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Bjarkarbraut 38, 805 Selfoss.
Glæsilegt sumarhús í Bjakarborgum með hitaveitu og eignarlóð.Eignin Bjarkarbraut 38 er alls 87,7 fm. Sumahúsið er 75,7 fm og gestahús (skráð geymsla) er 12 fm. Húsinu fylgir eignarlóð sem er skráð 5.000 fm.
Húsið er með hitaveitu, lokuðu ofnakerfi, heitum potti og útisturtu.Lýsing:
Forstofa með dúk á gólfi.
Stofa er björt með hátt til lofts og hurð út á sólpall, eldhús og stofa eru í opnu sameiginlegu rými með parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, gaseldavél og ofni.
Hjónaherbergi, rúmgott með parket á gólfi og skápum.
Svefnherbergi II með parket á gólfi með tveimur rúmum.
Svefnloft með parket á gólfi er rúmgott með stiga upp af gangi og opið niður í alrými.
Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtu, innréttingu með handlaug og upphengdu salerni.
Geymsla/þvottahús með parket á gólfi, geymsla með tengi fyrir þvottavél og geymslulofti. Útgengt út á sólpall.
Kaldir geymsluskápar eru byggðir við húsið á sólpalli.
Gestahús (bjálkahús) 12 fm, með kojum og salerni með vaski. Rafmagnshitun.
Geymsluskúr á lóð: ca. 6 fm, með fellihurð sem nýtt fyrir garðáhöld o.fl. Köld geymsla.
Húsið var stækkað umtalsvert 2012 með því að lengja báða enda þess og byggja við hliðarbyggingu með anddyri og geymslu/þvottahúsi.Sumarhúsið stendur á steyptum súlum.
Stór sólpallur með girðingu. Heitur potturGóða aðkoma og næg bílastæði.Möguleiki er að fá hluta af innbú með í kaupum á eigninni.
Þetta er fallegt hús sem hefur verið vel við haldið og er vel um gengið.
Árgald sumarhúsafélagsins á svæðinu er um 30.000.
Eignin Bjarkarbraut 38 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 220-7882, merkt 01-01, birt stærð 87.7 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:Lokað svæði með hliði (símahlið) einnig með fjarstýringu og eftirlitsmyndavél.
Á frístundasvæðinu eru huggulegt grasigróið svæði með almenningsleiktækjum fyrir börn, m.a. trampólín, sandkassi, róla og rennibraut.
Stutt er í golfvelli, veiði, sundlaug og fallegar gönguleiðir. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Selfoss er aðeins í ca. 22 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu.
Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.jonsmari@fasteignaland.issími: 860-6400 Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.