Fasteignaleitin
Skráð 18. feb. 2026

Hörgsholt 23

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
121.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
740.527 kr./m2
Fasteignamat
82.650.000 kr.
Brunabótamat
65.650.000 kr.
Mynd af Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2076515
Landnúmer
121246
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu eignar
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir út frá stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu: Falleg, 121,4 fm íbúð á tveimur hæðum með sér inngangi, í fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu, stofu, 3 svefnherbergi og  þvottahús/geymslu og lítil köld geymsla undir stiga. Svalir út frá stofu með glæsilegu útsýni. Eignin getur verð afhend í júní og hluti húsgagna getur fylgt. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is 


Nánari lýsing:
Neðri hæð skiptist í anddyri með fataskáp og parketflísum á gólfi, geymslu/þvottahús, baðherbergi og alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu.  
Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá Ikea og viðarlitaðri borðplötu. Tæki í eldhúsi eru innbyggður ísskápur/frystir, innbyggð uppþvottavél, helluborð, tveir ofnar í vinnuhæð og háfur. 
Stofa og borðstofa eru opnar og bjartar, gengið er út á svalir frá stofu. 
Gengið er upp á efri hæð úr stofu. 
Þrjú svefnherbergi eru á efri hæð, eitt með skápum. Gott skápapláss er i holi þegar komið er upp. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf að hluta, með viðarlitaðri innréttingu og sturtuklefa. Upphengt klósett og innbyggður kassi. Opnanlegt fag er á baðherberginu.
Þvottahús og geymsla innan íbúðar með  tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Að sögn seljanda er hiti í stiga úti og lítil, köld geymsla undir honum

Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið gert:
2019 Eldhús endurnýjað
2025 Skipt um glugga á austur hlið

Falleg íbúð, vel staðsett innst í botnlanga á grónum stað í Hafnarfirði. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og verslanir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/11/201765.750.000 kr.43.500.000 kr.121.4 m2358.319 kr.
05/06/201424.900.000 kr.30.600.000 kr.121.4 m2252.059 kr.
11/03/201324.150.000 kr.27.700.000 kr.121.4 m2228.171 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Geislaskarð 2
3D Sýn
Skoða eignina Geislaskarð 2
Geislaskarð 2
221 Hafnarfjörður
108 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin