Fasteignaleitin
Opið hús:11. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 5. ágúst 2026

Fálkagata 29

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
223 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
892.377 kr./m2
Brunabótamat
122.650.000 kr.
Byggt 1988
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20286921
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús með góðri garðaðstöðu til suðurs og sér bílastæði við Fálkagötu 29 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin sem er skráð samkvæmt þjóðskrá 223 m2 hefur á síðustu árum gengið í gegnum gagngerar endurbætur. Búið er að útbúa sér íbúð á jarðhæð en mjög auðvelt væri að breyta því í fyrra horf.

Nánari lýsing-inngangshæð
Gengið er inn í flísalagða forstofu með nýlegum flísum á gólfi og þaðan eru tveir inngangar, annars vegar í aðalíbúðina og hins vegar aukaíbúðina. Komið er inn í flísalagt hol með nýlegum flísum á gólfi með góðum skápum. Á hæðinni er flísalagt þvottahús með góðri innréttingu, geymslu og aðstöðu til að nota áður en farið er í út í heita pottinn.

Miðhæð hússins
Samanstendur af stofu, eldhúsi, rúmgóðu svefnherbergi og baðherbergi.
Stofan/borðstofan er parketlögð með vönduðu gegnheilu fiskibeinaparketi, með útgengi á tvennar svalir, fallegur arinn. 
Eldhúsið er parketlagt með gegnheilli eik með vandaðri hvítri innréttingu og eldunareyju með marmaraborðplötu og stóru Siemens helluborði með innbyggðum háfi. Opið er á milli eldhússins og stofunnar.
Svefnherbergið er parketlagt og er með góðum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt, grá innrétting, baðkar með sturtu, handklæðaofni og upphengt salerni.

Rishæð
Gengið er upp fallegan sérsmíðaðan stiga á efstu hæð í hjónaherbergið þaðan sem útsýni er yfir Skerjafjörð og Reykjanes.

Aukaíbúðin samanstendur af stofu þaðan sem opið er yfir í eldhús með nýlegri innréttingu með nýlegu parketi á gólfi, rúmgóðu svefnherbergi með parketi á gólfi og baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Auðvelt væri að breyta íbúðinni í fleiri svefnherbergi og gera rýmið aftur hluta af heildarhúsinu.

Gengið er frá jarðhæðinni á tveimur stöðum út á skjólsælan pall sem er sólríkur og með heitum potti. Útigeymsla er í garði.

Um er að ræða nokkuð mikið endurnýjað raðhús á góðum stað í Vesturbænum þar sem stutt er í skóla, leikskóla alla helstu þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kríuás 43
Bílskúr
Efsta hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Kríuás 43
Kríuás 43
221 Hafnarfjörður
234.5 m2
Fjölbýlishús
74
703 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Nýlendugata 22
Opið hús:16. ágúst kl 13:00-14:00
Skoða eignina Nýlendugata 22
Nýlendugata 22
101 Reykjavík
77.6 m2
Fjölbýlishús
412
1030 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 80
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Austurströnd 8
Bílastæði
Skoða eignina Austurströnd 8
Austurströnd 8
170 Seltjarnarnes
65.9 m2
Fjölbýlishús
211
939 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin