Miklaborg kynnir: Fallega sérhæð á Teigunum með bílskúr, samtals 165,4 fm, þar af er bílskúr 36 fm. Íbúðin skiptist í stofur og eldhús í opnu rými, þrjú góð svefnherbergi og baðherbergi með bæði baðkari og sturtuklefa. Stórar suðursvalir og bílastæði fyrir 2–3 bíla fyrir framan bílskúrinn, sem stendur innst á lóðinni. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, þar á meðal hafa fráveita og dren verið endurnýjuð, húsið múrviðgert og endursteinað, svo fátt eitt sé nefnt. Mjög fjölskylduvæn eign á frábærum stað!
Nánari lýsing: Um er að ræða fyrstu hæð með sérinngangi. Komið er inn í gang og rúmgott hol með fataskáp. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými sem snýr til suðurs og út í garð. Eldhús er með ljósri innréttingu og eldhúseyju. Útgengt er á stórar svalir til suðurs frá stofu. Hjónaherbergi er með opnum fataskápum og tvö góð barnaherbergi, þar af er annað með fataskápum. Glæsilegt baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi, upphengt salerni og góð innrétting með vaski. Gegnheilt parket er á öllum rýmum nema baðherbergi og anddyrisgangi. Innangengt er úr íbúðinni í kjallara þar sem er sérgeymsla, 6,2 fm að stærð, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hitakompu.
Bílskúrinn er 36 fm og stendur fjær húsinu. Þar eru þakgluggar og rafknúin bílskúrshurð. Fyrir framan bílskúrinn er hægt að leggja 2–3 bílum í innkeyrslunni að bílskúrunum.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar og endurbætur, ásamt húsfélagsyfirlýsingu, er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Falleg sérhæð með bílskúr í góðu ástandi á góðum stað við Laugardalinn.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 20/07/2015 | 39.100.000 kr. | 43.000.000 kr. | 165.4 m2 | 259.975 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 152,9 | 214,9 | ||
105 | 158,5 | 154,9 | ||
110 | 180,2 | 219,9 | ||
105 | 262,2 | 225 | ||
210 | 166,3 | Tilboð | ||
105 | 191,7 | 265 |