Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Barmahlíð 21

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
108.9 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
825.528 kr./m2
Fasteignamat
78.500.000 kr.
Brunabótamat
51.750.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2030035
Landnúmer
107015
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler. Móða sést í glerjum í stofu
Þak
Járn og pappi á þaki endurnýjað fyrir 3 árum síðan.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Móða sést í glerjum í stofum.
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 108.1 fm, 4 herbergja hæð með sérinngangi á 2.hæð á þessum vinsæla stað í Hlíðunum í Reykjavík. Fallegur gróinn og tyrfður garður til suðurs fyrir framan hús. Þjöppuð möl á austurhlið og fyrir norðan hús, aðkeyrsla og bílastæði. Sérbílastæði fyrir íbúðina er fyrir aftan hús. Garðskúr hjá bílastæði með rafmagnstengingu fyrir rafbíl. Arkitektar hússins eru Gísli Halldórson og Sigvaldi Thordarson. Frábær skjólsæl staðsetning með skóla á öllum stigum í göngufæri ásamt fjölbreyttir verslun og þjónustu. Stutt í falleg útivistarsvæði á Klambratúni, Öskjuhlíð með sinni fjölbreyttru náttúru og áhugaverðu söguminjum ásamt ylströndina í Nauthólsvík. Þá er miðbær Reykjavíkur í næsta nágranni með allt það sem hann hefur upp á að bjóða.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasali í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin skiptist í stigahús, hol, 2 samliggjand stofur, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymsluloft yfir allri íbúðinni, sérgeymslu í kjallara og sameiginlegri þvottaaðstöðu með 1. hæðinni í kjallara.

Nýlega er búið endurnýja járn og pappa á þaki. Þá hafa brunn og fráveitutengingar út í götu verið endurnýjaðar. Árið 2012 voru skólplagnir endurnýjaðar, nýjar drenlagnir lagðar, rafmagnstafla endurnýjuð fyrir húsið og færð í sameign ásamt nýjum inntökum fyrir heitt og kalt vatn í húsið. Eldvarnarhurðir hafa verið endurnýjaðar á milli brunahólfa (íbúða og sameignar). Þá var garður alveg endurnýjaður 2020. Eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð í íbúðinni, teiknuð og hönnuð af Teiknistofunni Tröð. Baðherbergi endurnýjað og teiknað af A2F arkitektum. 


ENDURNÝJUN/BREYTINGAR GERÐAR Á SÍÐUSTU ÁRUM:
Sameign:

2023:
Þakjárn og pappi endurnýjað.
2023:
Gerður nýr brunnur og lagnir endurnýjaðar út í götu.
2020:
- Eldvarnarhurðir settir í á milli brunahólfa (íbúða og sameignar)
- Garður alveg endurnýjaður, garður hækkaður með nýrri mold og þökum (norðan og sunnan megin) verönd og stígur sunnan megin í garði hellulagður
- Nýir gluggar í stigahúsi í kjallara
- Þakkantur lagaður
- Endurnýjun brunns og fráveitutengingar út í götu (hús 19-21)
2018:
- Útitröppur við aðalinngang endurnýjaðar, flotaðar
2017:
- Nýr handlisti settur upp við útitröppur
2012:
- Endurnýjun skólplagna
- Nýjar drenlagnir
- Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir húsið og færð í sameign
- Ný inntök, ný tenging fyrir heitt og kalt vatn
- Ný þvottaaðstaða, hver íbúð með sérgreini í rafmagnstöflu
Íbúð: 
Endurnýjun/Breytingar undanfarinna ára:

2020:
- Baðherbergi endurnýjað (nýjar flísar, upphengt klósett, ný blöndunartæki og sturtugler), gólfhiti að hluta til á gólfi og handklæðaofn nýr
- Gluggar málaðir utanhúss
- Ný sérgeymsla í sameign
2019:
- Nýr ofn og lagnir að hluta endurnýjaðar í svefnherbergi
- Lagt fyrir jósleiðaratengingu
2018:
- Nýtt gler sett í glugga í stigahúsi
2017:
- Nýr innbyggður fataskápur í barnaherbergi
- Borðstofa lokuð af og breytt í herbergi, ný hurð sett í
- Garðskúr settur upp og málaður
- Rafmagnstenging fyrir rafmagnsbíl lögð út í garðskúr
2015:
- Nýtt gler í glugga í svefnherbergi
2002:
- Innréttingar endurnýjaðar í eldhúsi, í stigahúsi (fatahengi) og á gangi (stórir fataskápar) af Teiknistofunni Tröð.

Eignin er íbúð 0201 á 2.hæð ; birt stærð 102,6 fm, ásamt geymslu 0003; birt stærð 3,3 fm, stigahúsi1002; birt stærð 3,0 fm, þakrými 0301; botnflötur 108,9 fm og svalir 0202; brúttóflötur 3,8 fm.

Nánari lýsing eignarinnar:
Stigahús: Gengið inn í stigahús um sérinngang, dökkur línoleum dúkur á gólfi. Pallur í stigahúsi nýttur sem forstofa.
Hol: Komið inní hol/gang úr stigahúsi. Tengir öll rými íbúðar. Innbyggður skápur við enda hols/gangs. Í lofti í holi er hleri með stiga upp á geymsluloft sem er yfir allri íbúðinni.
Stofa: Rúmgóð og björt með fallegum stórum gluggum til austurs og suðurs. Opin við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og opin við stofu. Útgengt út á svalir til suðurs.
Eldhús: Endurnýjað fyrir um 10 árum. Teiknað og hannað af Sigríði Magnúsdóttur og Hans-Olav arkitektum hjá teiknistofunni Tröð. Mjög rúmgott, ljós innréttingu með góðu skápaplássi og viðarplötu á elhúsbekk. Smeg ofn og gashelluborð ásamt innbyggðri uppþvottavél.
Herbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi II: Rúmgott, innbyggðir fataskápar. 
Baðherbergi: Uppgert fyrir um 6 árum. Fallegar munstraðar flísar á gólfi og sturtuvegg, hvítar flísar á veggjum frá flísabúðinni. Sturta á upphækkuðum botni með gleri, baðkar innaf sturtu.
Sérgeymsla: Geymsla í kjallara, birt stærð 3,3 fm. Geymsluloft yfir allri íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús með 1.hæð.

Garður: Garður alveg endurnýjaður fyrir um 7 árum. Garður hækkaður með nýrri mold og þökum. 
Geymsluskúr: Á baklóð hjá bílastæði. Rafmagnstenging fyrir rafmagnsbíl lögð út í garðskúr.

Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum í Reykjavík. Með fjölbreytta þjónustu, skóla á öllum stigum, íþróttasvæði Vals, falleg útivistarsvæði og miðbæ Reykjavíkur allt í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/12/202049.000.000 kr.58.500.000 kr.108.9 m2537.190 kr.
08/09/200622.770.000 kr.25.500.000 kr.130 m2196.153 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stefnisvogur 46
Skoða eignina Stefnisvogur 46
Stefnisvogur 46
104 Reykjavík
50.2 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Greniteigur 37
Bílskúr
Skoða eignina Greniteigur 37
Greniteigur 37
230 Reykjanesbær
172.6 m2
Raðhús
524
556 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Ægisíða 50
Skoða eignina Ægisíða 50
Ægisíða 50
107 Reykjavík
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
923 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 16
Bílastæði
Skoða eignina Strandvegur 16
Strandvegur 16
210 Garðabær
121.5 m2
Fjölbýlishús
32
781 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin