Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Leynir 7

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
128.5 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
92.000.000 kr.
Fermetraverð
715.953 kr./m2
Fasteignamat
80.900.000 kr.
Brunabótamat
77.950.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2521141
Landnúmer
233255
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2023)
Raflagnir
Upprunalegt (2023)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2023)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2023)
Þak
Upprunalegt (2023)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti / varmadæla
Inngangur
Tveir inngangar
- BÓKIÐ SKOÐUN HÉR - Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu einstaklega fallega og vandaða sumarhús á góðum og vinsælum stað í Grímsnesi, rétt við Kerið. Um er að ræða stílhreina og skemmtilega hannaða eign, byggða árið 2023, sem samanstendur af aðalhúsi og gestahúsi. Húsið eru á steyptum grunni, klædd svartri viðhaldslítilli báruklæðningu og með gólfhita sem hitaður er með varmadælu. Um 200 m² timburverönd umliggur húsið með heitum potti og góðri aðstöðu til útiveru. Eignin er staðsett í einstaklega fallegu umhverfi, til móts við Kerið, í aðeins um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík og stutt frá allri helstu þjónustu á Selfossi. Allar upplýsingar veitir Margrét Rós lgf, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is  ** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR **

** Seljandi skoðar skipti á íbúð á höfuðborgarsvæðinu **

Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá HMS er samtals 128,5 m², þar af er aðalhúsið 94,1 m² og gestahúsið 34,4 m², þar af 7,9 m² geymsla. Eignin stendur á 6.446 m² eignarlóð.

Nánari lýsing eignar
Aðalhús – 94,1 m²
Forstofa: Komið inn í opið anddyri með fataskáp og harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa / eldhús: Bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda eina heild. Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá IKEA og granítborðplötu. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi, með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með walk-in sturtu, upphengdu salerni, baðinnréttingu og þvottaaðstöðu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Gólf er flísalagt og veggir að hluta til.

Gestahús – 34,4 m²
Gestahúsið samanstendur af björtu og opnu rými, baðherbergi og sér tækjarými/geymslu. Harðparket er á gólfi í aðalrými en baðherbergið er flísalagt á gólfi og vegg að hluta. Gestahúsið býður upp á góða aðstöðu fyrir fjölskyldu og gesti.

Lóð og útiaðstaða
Frá aðalhúsi er skyggni í átt að gestahúsinu. Við húsin er um 200 m² timburverönd með heitum potti og góðri aðstöðu til útiveru. Gólfhiti er í báðum húsum og upphitun með varmadælu.

Bygging og frágangur
Húsið eru byggt árið 2023 á steyptum grunni með timburútveggjum og svartri viðhaldslítilli báruklæðningu. Gluggar og opnanleg fög eru úr áli og timbri. Gólfhiti er í húsinu og upphitun með varmadælu. Neysluvatnslagnir eru með rör-í-rör kerfi og frárennsli tengt rotþró.

Staðsetning
Leynir 7 er staðsettur á skipulögðu sumarhúsasvæði úr landi Miðengis í Grímsnesi, rétt við Kerið. Umhverfið er einstaklega fallegt og býður upp á fjölbreytta möguleika til útivistar. Svæðið er með læstu og aðgangsstýrðu hliði. Stutt er í verslanir og þjónustu á Selfossi og aðeins um 45 mínútna akstur til Reykjavíkur. Einstaklega falleg og vönduð sumarhúsaeign á stórri eignarlóð þar sem stílhrein hönnun, rúmgóð útiaðstaða með heitum potti, sér gestahús og frábær staðsetning við Kerið eru meðal helstu kosta eignarinnar.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/06/202559.750.000 kr.88.000.000 kr.128.5 m2684.824 kr.Já
15/06/20231.640.000 kr.82.000.000 kr.128.5 m2638.132 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
34.4 m2
Fasteignanúmer
2521141
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
21.300.000 kr.

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sléttuvegur 1
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Sléttuvegur 1
Sléttuvegur 1
846 Flúðir
146,7 m2
Sumarhús
514
740 þ.kr./m2
108.500.000 kr.
Skoða eignina Freyjustígur 11
Á einni hæð
Skoða eignina Freyjustígur 11
Freyjustígur 11
805 Selfoss
150 m2
Sumarhús
423
199 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsvík 7
3D Sýn
Heitur pottur
Skoða eignina Hofsvík 7
Hofsvík 7
805 Selfoss
73,8 m2
Sumarhús
321
541 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Rjúpnastekkur 10
Heitur pottur
Rjúpnastekkur 10
806 Selfoss
62 m2
Sumarhús
312
595 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin