** Opið hús fimmtudaginn 5.mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og mjög falleg 87,0 m2, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu við Vefarastræti 12 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 87,0 m2, þar af íbúð 77,4 m2 og geymsla 9,6 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofuhol, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign í kjallara. Gott skipulag og fallegar sérsmíðaðar innréttingar Axis. Innfelld lýsing hönnuð af Lúmex og mikil lofthæð sem gerir eignina bjara og skemmtilega. Svalir í suðurátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning rétt við grunn- og leiksskóla, Helgafellsskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í strætóstoppistöð. Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi í bílageymslu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofuhol með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengt salerni og sturtu auk tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa og borðstofa er í opnu rými með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með er fallegri L-laga innrétting með blástursofni, helluborði (með gufugleypi) og háf. Bosh tæki frá Smith og Norland. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Sérgeymsla er í kjallara með geymslulofti og mikilli lofthæð. Geymslan er staðsett inn af bílstæðinu. Er skráð 9,6 m2.
Bílageymsla: Stæði í bílageymslu merkt B11 fylgir eigninni.
Eigninni fylgir einnig hlutdeild að sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli. Innsteypt innfelld lýsing undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Rafmagnsopnanir í anddyrum. Mynddyrasími. Teppa-, og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðvist er í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar.
Verð kr. 72.900.000,-