Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Fornistekkur 7

SumarhúsVesturland/Búðardalur-371
109.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
592.153 kr./m2
Brunabótamat
58.300.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
23363647
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Virkilega vandað og vel byggt sumarhús er kallast "Sproti", stendur á stórri eignarlóð með miklu útsýni við Hvammsfjörð í Dalabyggð.

Eignin skiptist í tvö hús:
Hið fyrra á tveimur hæðum með birtri stærð 87,9 fm (raunstærð 109,6 fm, efri hæð að hluta til undir súð).
Hið síðara, á einni hæð með birtri stærð 21,7 fm, skiptist í stúdíóíbúð með eldhúsaðstöðu og baðherbergi og svo er utan á því húsi geymsla.

Húsin standa á 9.600 fm eignarlóð með mikilli víðsýni og engri ljósmengun, staðsett þar sem þjóðvegur 54 (Snæfellsvegur milli Búðardals og Stykkishólms) og þjóðvegur 55 (Heydalsvegur er þverar Snæfellsnesið) mætast.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Húsin geta tekið í dag allt að 10 manns í gistingu í rúmum.

Húsin eru kynnt með rafmagni, er 100 L hitakútur í stærra húsinu og 30 L hitakútur í því minna, fyrir heitt neysluvatn.

Á lóðinni er sér borhola sem skaffar nægt og gott kalt vatn fyrir eignina.

Ljósleiðari er til staðar í húsinu.

Húsin eru byggð á súlum er hvíla á klöpp með sterkbyggðu timburgólfi.

Minna húsið var klárað fyrr og fékk fullnaðarúttekt 2013 en stærra húsið fékk lokaúttekt 2024.

Allt innbú fylgir með utan persónulegra muna.

Nánari lýsing:
Rúmstæði eru fyrir allt að 10 manns til gistingar í 4 herbergjum alls.
Gott og vandað eldhús í stærra húsinu og er birta í sameignarrýmum góð um bjarta glugga. Minna húsið er með eldhúsinnréttingu með vask og helluborð með tveimur hellum.
Baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni beggja húsa er parket.
Verönd og hellulagt svæði er í skoti við inngang í húsin þar sem  þau mætast og mynda gott skjól í ákveðnum áttum. 
Tekur um 2 klst að keyra frá Reykjavík og um 35 min að keyra út á Stykkishólm til að sækja þjónustu.
Húsið hefur verið leigt út á Airbnb innan heimagistingarleyfisreglna og því til síða fyrir eignina með góðum umsögnum.

Virkilega vönduð eign á eignarlóð með einstakri staðsetningu fyrir vandláta.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignalausnir ehf
670kopasker@gmail.com

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fornistekkur 7
Skoða eignina Fornistekkur 7
Fornistekkur 7
371 Búðardalur
109.6 m2
Sumarhús
624
592 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergahraun 21
3D Sýn
Skoða eignina Dvergahraun 21
Dvergahraun 21
805 Selfoss
102.6 m2
Sumarhús
424
733 þ.kr./m2
75.200.000 kr.
Skoða eignina Meðalfellsvegur 10
Meðalfellsvegur 10
276 Mosfellsbær
104.7 m2
Sumarhús
312
Fasteignamat 59.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hlíðartröð 1 Dalvík
Hlíðartröð 1 Dalvík
621 Dalvík
109 m2
Sumarhús
312
384 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin