Fasteignaleitin
Skráð 18. apríl 2024
Deila eign
Deila

Furulundur 9

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
307.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
552.161 kr./m2
Fasteignamat
174.200.000 kr.
Brunabótamat
89.800.000 kr.
Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
Þvottahús
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2070065
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað - þarfnast aðhlynningar
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Sjá ástandsyfirlýsingu seljanda. Þakkantur, Klósett og annað á eftir að klára.
Kvöð / kvaðir
Seljandi tengist eiganda fasteignasölunar fjölskylduböndum.
ALLT kynnir í einkasölu Furulund 9 Garðabæ. Fallegt og einstakt 307 fm, 5 herbergja einbýlishús á einni hæð þar af 39,7 fm bílskúr á grónum og vinsælum stað, staðsett innst í botnlanga. Frábært útsýni yfir Skerjafjörð, Garðabæ og til norðurs að Esju. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, íþróttaaðstöðu og verslanir. 

Eignin er einstök hvað varðar byggingarstíl, byggingarefni og hönnun innandyra. Mikið víðsýni til allra átta. Húsið er klætt að utan með Lerki. Þak var yfirfarið 2019 að sögn seljanda sem og mikið af rafmagni ásamt nýrri rafmagnstöflu. Lagnir endurnýjaðar að hluta 2020. Gler og gluggapóstar endurnýjaðir að hluta 2015. Flestar innihurðar hafa verið endurnýjaðar. Á flestum gólfum eru stuðlabergsflísar frá Steinkompaní. Í stóru bogadregnu rými er steinteppi, sérvaldir steinar úr Stokknesfjöru við Hornafjörð. Bæði gólfhiti og ofnakerfi er í húsinu.  Arinn í miðrými er sérhannaður inn í rýmið og smíðaður af Vélsmiðjunni Héðni. Ónýttur er byggingarréttur við norðaustur horn hússins, samtals um 20 fm.


Nánari lýsing: 
Anddyri: Rúmgott og opið með Stuðlabergsflísum á gólfi.
Gestasnyrting: með ljósri innréttingu undir vaski, upphengt salerni. Steinflísar á veggjum og gólfi. 
Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu opnu rými með Stuðlabergs flísum á gólfi, innfelldri lýsingu í lofti. Útgengt út á verönd, afar glæsilegt útsýni er frá húsinu.
Eldhús: Ný viðarinnrétting með góðum hirslum, gegnheil viðarborðplata og eldhústæki frá Byko, fallegt útsýni til norðurs.
Stofa/borðstofa: Sérhannaður arinn, að hluta til viðarklæðning á veggjum. Rýmið er bjart og gott útsýni til norðurs. Útgengt er úr stofu út á stóra og skemmtilega hannaða verönd sem snýr í vestur. Mikið og fagurt útsýni. 
Svefnherbergi:  Eru þrjú á sér gangi, öll mjög rúmgóð. Auðvelt að bæta við fjórða herberginu. Byrjað er á endurbótum á herbergjum en því er ólokið.
Setustofa: er fremst á svefnherbergisgangi. Björt og rúmgóð, viðarklædd, með útgengi út í garð. Gott útsýni að Bláfjöllum m.a. 
Hjónaherbergi / stofa: Frá stofu/borðstofu er gengið um hol er liggur að 58 fm björtu og bogadregnu rými sem í dag er nýtt sem svefnherbergi. Aukin lofthæð. Steinteppi á gólfi. Stórbrotið útsýni m.a að Keili, Esju og hinum magnaða Snæfellsjökli.
Baðherbergi: er með stóru sérsteyptu baðkari og sturtuaðstöðu. Rýmið er óklárað. 
Þvottahús: er við hliðina á eldhúsi, rúmgott með góðri viðar innréttingu. Mikið skápapláss. Stæði fyrir þvottavél. Skolvaskur, gluggi. 
Bílskúr: er tvöfaldur 39,7 fm og inn af honum tvær góðar geymslur. Næg bílastæði. 
Bílastæði og lóð að framanverðu er ófrágengin.



Nánari upplýsingar veitir/veita:

Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali,
í síma 560-5501,
tölvupóstur pall@allt.is

Helgi Bjartur Þorvarðarsson
í námi til löggildingar / lögfræðingur
í síma 7702023
tölvupóstur helgi@allt.is


ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
39.7 m2
Fasteignanúmer
2070065
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunhólar 21
Bílskúr
Skoða eignina Hraunhólar 21
Hraunhólar 21
210 Garðabær
273.5 m2
Einbýlishús
514
658 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Logafold 109
Skoða eignina Logafold 109
Logafold 109
112 Reykjavík
281.5 m2
Raðhús
725
547 þ.kr./m2
154.000.000 kr.
Skoða eignina Kórsalir 1
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Kórsalir 1
Kórsalir 1
201 Kópavogur
291.3 m2
Fjölbýlishús
835
549 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Glitvellir 28
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Glitvellir 28
Glitvellir 28
221 Hafnarfjörður
305.1 m2
Einbýlishús
936
521 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache