Fasteignaleitin
Skráð 24. apríl 2026

Tryggvagata 10

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
67.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
60.900.000 kr.
Fermetraverð
899.557 kr./m2
Fasteignamat
2.800.000 kr.
Garður
Bílastæði
Fasteignanúmer
2535171
Landnúmer
175491
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Nýtt hús
Raflagnir
Nýtt hús
Frárennslislagnir
Nýtt hús
Gluggar / Gler
Nýtt hús
Þak
Nýtt hús
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Eignamiðlun og JÁVERK kynna með stolti glæsilegar, vandaðar nýjar íbúðir, frábærlega staðsettar í þriggja til fjögurra hæða staðsteyptum húsum alveg við hinn nýja miðbæ á Selfossi, þar sem finna má fjölda veitingastaða, kaffihúsa og verslana. Stutt í sundlaug Selfoss og umferðaræðar. Vandaðar og bjartar íbúðir með stórum gluggum, steini á borðum, lýsingarhönnun frá Lumex, flísum á böðum og lyftu í öllum húsum þar sem allt efni er svans-vottað. Loftskiptikerfi er í öllum íbúðum.  Geymsla og bílastæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.  Byggingaraðili er JÁVERK sem er þekkt er fyrir frábæra hönnun og vönduð vinnubrögð.

Íbúð 305 í Tryggvagötu 10, merkt 01-0305, er skráð samtals 67,7 fermetrar í fasteignaskráningu, sem skiptist í 57,3 fermetra íbúð og 10,4 fermetra geymslu í kjallara merkt 01-0010. Einnig fylgir bílastæði í bílakjallara merkt 05-B013. Fastanúmer eignarinnar er F253-5171. Íbúðin er skemmtilega hönnuð og rúmgóð tveggja herbergja með eldhúsinnréttingu í horn, borðstofu og setustofu í skemmtilegu alrými þar sem er gengið út á stórar svalir. Rými fyrir þvottavél og þurrkara inná baðherbergi. 

Allar upplýsingar veita:
·         Rögnvaldur Örn Jónsson, löggiltur fasteignasali í síma 660-3452 eða rognvaldur@eignamidlun.is
·         Alfreð Valencia, viðskiptafræðingur, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
·         Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, löggiltur fasteignsali í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is
·         Daði Hafþórsson, löggiltur fasteignasali í síma 824-9096 eða dadi@eignamidlun.is

Tryggvagata 10 til 12 eru fjögur staðsteypt hús, einangruð að utan og klædd með báruáli. Þök eru hallandi risþök, klædd ásoðnum tjörupappa og báruáli. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið eru úr galvaníseruðu stáli og pólýhúðuð. Sérafnotareytir íbúða á jarhæð eru timburklæddir. Allir gluggar og hurðir eru úr timbur-álkerfi frá IdealCombi. Húsin hafa farið í gegnum hljóðhönnun og er allt gler framleitt miðað við kröfur hljóðvistar, byggt á staðsetningu í húsunum.

Íbúðir verða afhentar með ljósum flísum á baðherbergjum en án megin gólfefna. Innveggir eru hlaðnir, sandsparslaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir að hluta með ljósum flísum en að öðru leiti sandsparslaðir og málaðir með Svans-vottaðri votrýmismálningu. Loft eru slípuð, sandspörsluð og máluð, en loft íbúða á efstu hæðum eru klædd með hvítum hljóðsogsdúk.

Hurðir íbúða eru hvítar, yfirfelldar með svörtum hurðarhúnum.
Fataskápar eru frá Selós ehf, sérsmíðaðir í fullri lofthæð og felldir að lofti með listum. Lamir og skúffubrautir eru með ljúflokun, ljós í skápum.
Eldhúsinnréttingar eru sömuleiðis sérsmíðaðar af Selós ehf. Á borðum eru Dekton steinborðplötur, ljúflokun á hurðum og skúffum, höldur úr stáli og lýsing undir efri skápum. Kæliskápar og uppþvottavélar eru innbyggðar í innréttingar. Span-helluborð eru innfeld í borðplötur, og í íbúðum með eldunareyju er gufugleypir innbyggður í helluborðið. Þar sem helluborð er ekki í eyju er hefðbundin vifta undir efri skáp. Eldhústæki eru flest frá AEG og blöndunartæki frá Grohe.
Innréttingar á böðum og þvottahúsum eru sömuleiðis sérsmíðaðar hjá Selós ehf. Silestone steinborðplötur á baði með undirlímdri hvítri handlaug, plastlagðar borðplötur undir þvottavél og þurrkara. Vönduð Grohe blöndunartæki og 25 sentimetra sturtuhaus í sturtum.

Í öllum íbúðum er hefðbundið ofnakerfi nema á baðherbergjum þar sem er gólfhiti. Jafnvægisstillt loftræstikerfi með varmaendurvinnslu er í öllum íbúðum.
Frekari upplýsingar um frágang húsanna má finna í skilalýsingu.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt í eftir fullnaðarfrágang verkefnisins.


Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 |
www.eignamidlun.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2024
Fasteignanúmer
2535171
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
B1
Númer eignar
3
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Auðbrekka 16
Opið hús:28. apríl kl 17:00-17:45
Skoða eignina Auðbrekka 16
Auðbrekka 16
200 Kópavogur
123.4 m2
Fjölbýlishús
312
647 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Snæfríðargata 3
Snæfríðargata 3
270 Mosfellsbær
105.5 m2
Fjölbýlishús
413
839 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Pósthússtræti 9, 301
Pósthússtræti 9, 301
230 Reykjanesbær
118.8 m2
Fjölbýlishús
312
841 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 3
Opið hús:29. apríl kl 17:15-17:45
Skoða eignina Dalsbraut 3
Dalsbraut 3
260 Reykjanesbær
74.2 m2
Fjölbýlishús
312
713 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin