Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 245,0 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 58,9 fermetra tvöföldum bílskúr á 1.020,0 fermetra frágenginni lóð á eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ.
Húsið hefur allt verið endurnýjað að innan og utan á árunum 2017-2025.
- Húsið einangrað upp á nýtt og klætt með áli.
- Allt gler, gluggar og allar útihurðir endurnýjaðar.
- Þakjárn og þakpappi endurnýjað. Þakkantur álklæddur að framan. Nýjar álrennur og niðurföll.
- Lagnir fyrir skólp (út fyrir lóðarmörk), neysluvatn og rafmagn endurnýjaðar, forhitari fyrir neysluvatn, lagt gólfhitakerfi, skipt um inntök og töflur og grind endurnýjuð.
- Free at Home hússtjórnarkerfi fyrir lýsingu, hitastýringu og heitan pott.
- Öryggiskerfi frá Securitas.
- Rafhleðslustöð við bílskúr.
- Skipulagi hið innra breytt og byggð 42,0 fermetra viðbygging við húsið sem er að stórum hluta hjónasvíta með bað- og fataherbergi.
- Öll loft klædd upp á nýtt, aukin einangrun og ný rakasperra. Sett innfelld lýsing auk þess sem loftræstikerfi var sett í viðbyggingu með möguleika á að tengja við restina af húsinu. Öll loft og veggir heilsparslaðir.
- Baðherbergi endurnýjuð.
- Gestasnyrting endurnýjuð.
- Eldhús endurnýjað.
- Öll gólfefni, fataskápar og innihurðir endurnýjaðar.
- Allar innréttingar, að meðtöldum fataskápum, auk innihurða eru íslensk sérsmíði.
Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og með innbyggðum fataskápum.
Gestasnyrting, með glugga, flísalagt gólf og veggir að hluta. Vegghengt wc.
Hol, parketlagt.
Samliggjandi stofur, parketlagðar og bjartar með fallegri gluggasetningu, mikilli lofthæð, fallegum viðarklæddum vegg, innfelldri lýsingu í loft og útgengi um rennihurð á viðarverönd til suðurs.
Eldhús, opið við borðstofu, parketlagt og bjart með góðum gluggum, aukinni lofthæð og mjög fallegum sérsmíðuðum innréttingum sem eru bæði hvítar og úr dökkbæsaðri eik. Tvöfaldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og spanhelluborð með innbyggðum háfi aftan við.
Gangur, parketlagður og með innfelldri lýsingu í loftum.
Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf, góðar innréttingar með vinnuborði, vaski og stæði fyrir vélar í vinnuhæð.
Baðherbergi I, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, speglaskápar með innbyggðri lýsingu, vegghengt wc., baðkar og flísalögð stór sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fataskápum á heilum vegg.
Sjónvarpshol, parketlagt.
Viðbygging við húsið og er með loftræstikerfi í, skiptist þannig:
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataherbergi og baðherbergi inn af.
Fataherbergi, parketlagt og með fallegum sérsmíðuðum innréttingum.
Baðherbergi II, með glugga og göngudyrum út á viðarverönd með heitum potti. Flísalagt gólf og veggir að hluta, vaskborð úr kvartsteini, innbyggðir skápar í vegg og flísalögð sturta með innbyggðum Vola tækjum í vegg, sturtuhillu innbyggðri í vegg og sturtugleri.
Vinnuaðstaða, með veggfastri borðplötu sem nýtist í dag sem skrifstofa. Opin en stúkuð af með trérimlum.
Hol, þar sem innangengt er í bílskúr með góðum sérsmíðuðum skápum.
Bílskúr, sem innangengt er í af svefngangi um eldvarnarhurð, er tvöfaldur 58,9 fermetrar að stærð að meðtalinni geymslu og tækjarými sem eru inn af bílskúr. Epoxy á gólfum, nýjar bílskúrshurðir með nýjum mótorum og ný gönguhurð.
Geymsla, inn af bílskúr er með gluggum. Í geymslu er loftræstisamstæða.
Inntaksrými, inn af geymslu er með glugga.
Húsið að utan er í mjög góðu ástandi, allt nýlega klætt með áli frá Áltaki með innbrenndum lit. Þakjárn er nýlegt sem og einangrun húss að utan og einangrun þaks. Allt gler og gluggar og allar útihurðir eru nýlega endurnýjaðar.
Lóðin, sem er 1.020,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin. Stór innkeyrsla með hitalögnum undir, hellulögð stétt meðfram innkeyrslu með hitalögnum undir, lokað kerfi með varmaskiptum. Stór viðarverönd með skjólveggjum og heitum potti, komnar undirstöður og lagnir fyrir geymsluskúr fyrir aftan verönd, tyrfð flöt og trjágróður. Stór hluti lóðarinnar er afgirtur með nýjum skjólvegg og þrefalt ruslatunnuskýli stendur á afgirtri hellulagðri verönd norðan við bílskúr.
Staðsetning eignarinnar er góð á rólegum og eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is