Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Örvasali 5 – einstaklega vel staðsett og vel viðhaldið fjölskylduhús í litlu og eftirsóttu hverfi í Salahverfi Kópavogs
Um er að ræða fallegt 278,5 m² einbýlishús með 35 m² bílskúr á frábærum stað við botnlanga í Örvasölum sem er lítið og vinsælt hverfi í Salahverfi Kópavogs þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslun og falleg útivistarsvæði. Í húsinu eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Húsið hefur fengið afar gott viðhald á undanförnum árum en árið 2025 var húsið klætt að utan með fallegri 4 mm álklæðningu frá Idex og húsið jafnframt einangrað að utan.
Húsið er með ál/tré gluggum, aukinni lofthæð á báðum hæðum og gólfhita í öllu húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.
Nánari lýsing
Gengið inní rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi.
Bjart og opið alrými tengir saman stofu, borðstofu og eldhús á fallegan hátt þar sem eru stórir gluggar, aukin lofthæð og útgengi á stóran sólpall. Á jarðhæð er stórt svefnherbergi (vinnuherbergi og geymsla á teikningu) ásamt baðherbergi.
Eldhúsið er rúmgott með góðu vinnuplássi, fallegri HTH innréttingu og vönduðum AEG tækjum, ofni og helluborði.
Þvottahús var endurnýjað árið 2021 með nýrri innréttingu og góðri vinnuaðstöðu. Þaðan er útgengt út í garð þar sem er þvottasnúra.
Svefnherbergin eru alls fimm talsins, öll mjög rúmgóð og fjölskyldurými hússins einstaklega vel skipulögð. Hjónaherbergi er með fataherbergi. Eitt herbergi er staðsett á neðri hæð og fjögur á efri hæð.
Baðherbergi á efri hæð var tekið í gegn árið 2022 með einstaklega smekklegum hætti. Þar er walk-in sturta með innbyggðum sturtutækjum ásamt sérsmíðaðri Corian borðplötu frá Orgus með innbyggðum vaski.
Garður og útisvæði eru skjólsæl og fjölskylduvæn en við húsið er um 100 m² suður pallur.
Eignin er með tvennum góðum svölum til suðurs og vesturs með mjög fallegu útsýni.
Húsið er útbúið þjófa- og brunavarnakerfi ásamt ljósastýringakerfi frá Gira. Þá er einnig varmaskiptir fyrir neysluvatn í húsinu.
Fyrirhugað fasteignamat 2027: 212.000.000 kr. Arkitekt er Kristinn Ragnarsson.
Næg bílastæði og staðsetningin einstaklega róleg þar sem lítil umferð er innan götunnar.
Hér er um að ræða vel viðhaldið og einstaklega vel staðsett fjölskylduhús á einum eftirsóttasta stað Salahverfis þar sem sameinast ró, næði, fallegt umhverfi og stutt í alla helstu þjónustu. Salaskóli, leikskólar, göngu- og hjólaleiðir eru allt í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.