Afar björt og falleg "penthouse" 4-5 herbergja íbúð við Kristnibraut 45 ásamt rúmgóðum bílskúr.
* Glæsilegt útsýni yfir Reykjavík og nærsveitir til sjávar og fjallagarða
* Rúmgóður bílskúr og geymsla
* 83 m2 þaksvalir til suðurs/norðurs og austurs (ath. utan birtra fermetra)
* Rafbílahleðslustöðvar eru við húsið
* Þvottahús innan íbúðarViðhald eignar síðastliðin ár tiltelur ma:* 2021 var húsið málað og gerðar múrviðgerðir
* 2025 var parket pússað
* 2026 var íbúðin máluð að mestum hluta
Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurSamkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 182,9 fermetrar, þar af er íbúð og geymsla 156,90 fermetrar og bílskúrinn 26 m2.
Eignin skiptist í andyri, stofu / borðstofu, svalir, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.Anddyri er með fataskáp og parket á gólfi. Í holi er annar fataskápur.
Stofa /
borðstofa er mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi. Útgengt út á svalir. Auðvelt væri að bæta hér við
svefnherbergi 4.
Svalir eru mjög rúmgóðar 83 fermetra svalir sem snúa þrjár áttir. Norður, austur og suður. Útgengi er á svalirnar bæði frá stofu og eldhúsi.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu með eldhúseyju og góðu skápaplássi. Helluborð í eyju ásamt gufugleypi. Bakaraofn í vinnuhæð og gott vinnupláss. Borðplata er úr granít.
Rúmgóð og bjartur borðkrókur er í eldhúsinu, flísar á gólfi og gluggar í tvær áttir.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með handlaug, upphengdu wc ásamt og "walkin" sturta var endurnýjuð 2024.
Þvottahús er flísalagt með borðplötu, skolvask og tengjum fyrir vélar.
Sérgeymsla er skráð 15 m2 hjá HMS.
Bílskúr er skráður 26 m2 samkv. HMS. Hann er upphitaður, þar er rafdrifin hurð, heitt/kalt vatn og hillur.
Frábærlega vel staðsetta eign. Stutt er í alla helstu þjónustu, matvöruverslun (Krónan), skóla, leikskóla, útivistarstæði, golfvöll og margt fleira.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.