Fasteignaleitin
Skráð 11. feb. 2026

Ægissíða 19

EinbýlishúsNorðurland/Grenivík-610
278.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.000.000 kr.
Fermetraverð
190.579 kr./m2
Fasteignamat
56.250.000 kr.
Brunabótamat
88.000.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2161021
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
óþekkt
Raflagnir
óþekkt
Frárennslislagnir
óþekkt
Gluggar / Gler
Gamlir - móða er á milli í nokkrum
Þak
Var mjög mikið endurnýjað kringum 2000.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
* Ummerki eru um raka í útveggjum á neðri hæðinni.
* Ummerki eru um leka í hjónaherbergi, sjónvarpshorni og í einu barnaherbergi sem snýr til norðurs.
* Bílskúr og stóra geymslan inn af eru að stærstum hluta óeinangrað.
* Innra skipulag eignar er ekki í samræmi við teikningar.

 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Ægissíða 19 - 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum og með innbyggðum rúmgóðu bílskúr á Grenivík - stærð 278,1 m²
Skemmtilegt sjávarútsýni 


Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð, 142,3 m²:
Forstofa, gangur, þvottahús, geymslur og bílskúr.
Efri hæð. 135,8 m² : Gangur, eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpshorn í opnu rými, baðherbergi, fjögur svefnherbergi og geymsla.

Forstofa er með flísum á gólfi og opnu hengi. Úr forstofu liggur parketlagður timburstigi upp á efri hæðina. 
Eldhús, tvílit innrétting, spónlögð og sprautulökkuð og með þiljum á milli skápa. Dökkt plast parket á gólfi og borðkrókur með glugga til vesturs. 
Stofa, borðstofa og sjónvarpshorn eru í opnu rúmgóðu rými þar sem dökkt plast parket er á gólfum og gluggar til þriggja átta. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, ljósri innréttingu, wc, baðkari, sturtuklefa og opnanlegum glugga. 
Svefnherbergin eru fjögur, öll með dökku plast parketi á gólfi. Stór fataskápur er í einu herbergi og úr einu barnaherbergi er hurð til suðurs út á verönd.
Þvottahús er á neðri hæðinni, þar er steypt ómálað gólf og opnanlegur gluggi. 
Mjög gott geymslupláss er í húsinu. Lítil geymsla/búr er á efri hæðinni með dúk á gólfi, hillum og opnanlegum glugga. Á neðri hæðinni eru tvær geymslur, ein minni inn af þvottahúsinu og önnur mjög rúmgóð en frekar hrá inn af bílskúrnum. Ekki er full lofthæð í geymslunum á neðri hæði'nni. .
Bílskúr er skráður 54,3 m² að stærð en mjög hrár að innan. Grafið hefur verið út úr bílskúrnum og gólf síkkað og hellulagt.

Annað
- Kringum árið 2000 var þak mikið endurnýjað, drenað með öllum hliðum, neðri hæðin einangruð og múruð og frárennsli endurnýjað frá húsi. 
- Timburgólf er á milli hæða að hlutatil.
- Ekki er full lofthæð í hluta af neðri hæðinni.
- Timburverönd er með hluta af bakhliðinni.
- Malbikað bílaplan.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi eignar er dánarbú og þ.a.l. getur seljandi ekki uppfyllt upplýsinga skyldu sína samkvæmt lögum 40/2002 um almennt ástand og ábyrgðaryfirlýsingu eignar. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
54.3 m2
Fasteignanúmer
2161021
Númer hæðar
01
Númer eignar
02

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 107
Skoða eignina Hringbraut 107
Hringbraut 107
101 Reykjavík
52.7 m2
Fjölbýlishús
211
972 þ.kr./m2
51.200.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 124
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hraunbær 124
Hraunbær 124
110 Reykjavík
65.7 m2
Fjölbýlishús
211
805 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin