Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2021

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
372 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
232.000.000 kr.
Fermetraverð
623.656 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
811191126
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar verandir með glæsilegu útsýni
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR GOLFVILLUR*-*FYRSTA LÍNA - FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á einni hæð ásamt stórum kjallara í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og OG FRÁBÆRU ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. stórt rými í kjallara sem nýta má á ýmsa vegu. Stór sér lóð. Lokaður bílskúr í kjallara.
60 GOLFHRINGIR Á LA FINCA GOLFVELLINUM FYLGIR MEÐ Í VERÐINU.


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.


Nánari lýsing:
Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar  á sér gangi og þar er annað baðherbergi. 

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug. Einstakt útsýni yfir La Finca golfvöllinn og gróið og fallegt umhverfi.
Rúmgóður kjallari undir húsinu, sem býður upp á mikla möguleika, td. fyrir bílageymslu, bíósal, ýmsar tómstundir og vinnu aðstöðu. 
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Speglar og sturtugler fylgir og auk þess home autamation kerfi.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrsti áfangi uppseldur. Annar áfangi var að koma í sölu. Aðeins örfá hús í boði.
Hægt er að skoða sýningarhús á staðnum.

Verð 1.600.000 Evrur. (232.000.000ISK miðað við gengi 1E=145ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, bílskúr, útsýni, golf,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
811191126

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnubraut 8
Bílskúr
Skoða eignina Sunnubraut 8
Sunnubraut 8
300 Akranes
235.3 m2
Einbýlishús
514
402 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 103
Bílskúr
Kársnesbraut 103
200 Kópavogur
186 m2
Einbýlishús
624
806 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Álfabrekka 11
Bílskúr
Skoða eignina Álfabrekka 11
Álfabrekka 11
200 Kópavogur
264.5 m2
Einbýlishús
825
718 þ.kr./m2
189.800.000 kr.
Skoða eignina Kirkjubraut 61
Bílskúr
Opið hús:04. maí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Kirkjubraut 61
Kirkjubraut 61
780 Höfn í Hornafirði
164.5 m2
Einbýlishús
514
407 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin