Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Ásvallagata 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
66.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.000.000 kr.
Fermetraverð
1.121.076 kr./m2
Fasteignamat
70.000.000 kr.
Brunabótamat
35.250.000 kr.
Mynd af Pétur Ásgeirsson
Pétur Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2004083
Landnúmer
101264
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt inn í íbúð.
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Skipt um að hluta
Þak
upprunalegt nýbúið að mála það
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
ja
Upphitun
ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 66,9 fm risíbúð á 3. hæð við Ásvallagötu 25, íbúð 301 í 101 Reykjavík.
Íbúðið er í leigu og leigjendur vilja gjarnan vera áfram ef það er hægt.

// Íbúðin mikið endurnýjuð.
// Mjög góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
// Fallegt útsýni.
// Stórar suður svalir.
// Þvottahús innan íbúðar.
// Öll íbúðin er parketlögð fyrir utan baðherbergi, þar eru flísar með gólfhita.
// Allir gluggar í íbúðinni eru endurnýjaðir ásamt ofnalögnum
// Allir ofnar í íbúðinni eru endurnýjaðir ásamt ofnalögnum.
// Raflagnir endurnýjaðar.


Eftirfarandi framkvæmdir voru gerðar að sögn seljanda frá mars 2020.

-Baðherbergið var endurnýjað að fullu. Veggirnir og gólfið flísalagt, nýtt bað, nýtt klósett og nýr vaskur í innréttingu. Nýjar lagnir tengdar og hiti settur í gólf. Speglaskápur og led lýsing.
-Eldhúsið. Nýtt parket og ný eldhúsinnrétting sem passar vel við stærð íbúðarinnar.  Innrétting á endurnýjuð vegg. Vatns og frárennslislagnir endurnýjaðar.  Ný rafmagnstafla fyrir eldhúsið.
- Stærra svefnherbergið, (norður) beint á móti inngangi var lagt nýju parketi og veggirnir og gluggar endurnýjaðir (Velux).
-Stofan. Nýtt parket og og útveggur styrktur og lagfærður innan og utan fyrir nýja svalahurð. Aðliggjandi veggir að eldhúsi og svefnherbergi gipsklæddir og málaðir. 
-Nýir Velux þakgluggar í risi (einn á baðherbergi, tveir í norður svefnherbergi og einn í eldhúsi), nýjir gluggar í eldhúsi, stofu og suður svefnherbergi. 
-Nýjar svalir og svalahurð. 
-Þakið var málað, húsið múrað og málað að utan og stigagangur tekinn alveg í gegn.
-Garður lagaður til, ný girðing sett upp ásamt skýli fyrir sorptunnur.
-Tilboð hefur verið samþykkt í hellulagningu frá útgangi út í garð að göngustíg (Það er til fyrir því í hússjóð). 
Um 350 þúsund eru til í hússjóð - ca. 150 þúsund fer í hellulagningu og 150 þúsund í garðþjónustu. Ca 8.500 greitt í hússjóð á mánuði. Greitt er fyrir tryggingar og þrif í sameign mánaðarlega og það er afgangur eftir það. 

Nánari lýsing:
Gengið er inn í teppalagðan stigagang. 
Á stigapalli framan við íbúðina er tvöfaldur geymsluskápur.
Anddyri: Er parketlagt með fatahengi.
Stofan: Parket á gólfi, er rúmgóð með útgengi út á suðursvalir.
Eldhúsið: Parket á gólfi, ný falleg innrétting með fínu skápaplássi og með góðum borðkrók. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Herbergi 1: (Suður) Parket á gólfi og með fataskáp.
Herbergi 2: (Norður) Parket á gólfi.
Baðherbergið: Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, baðkar, handklæðaofn og upphengt WC.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign í góðu íbúðarhverfi í vesturbænum. Göngufæri er í leik-og grunnskóla og flesta þjónustu og stutt er í fallegar gönguleiðir í nærumhverfinu.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/04/202036.250.000 kr.34.950.000 kr.55.1 m2634.301 kr.
07/09/201216.000.000 kr.12.300.000 kr.55.1 m2223.230 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Forsalir 1
3D Sýn
Skoða eignina Forsalir 1
Forsalir 1
201 Kópavogur
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 104
Opið hús:29. maí kl 12:15-12:45
Skoða eignina Njálsgata 104
Njálsgata 104
105 Reykjavík
76.6 m2
Fjölbýlishús
311
881 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Bílskúr
Opið hús:25. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Tómasarhagi 17
107 Reykjavík
257.6 m2
Fjölbýlishús
825
753 þ.kr./m2
194.000.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 5
Bílastæði
Skoða eignina Reykjastræti 5
Reykjastræti 5
101 Reykjavík
80.9 m2
Fjölbýlishús
211
1717 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin