Skráð 10. feb. 2026

Hagaskógur 1

Nýbygging • EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-604
249.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
76.350.000 kr.
Mynd af Friðrik Einar Sigþórsson
Friðrik Einar Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2518400
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur fyrir framan eldhús
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Hagaskógur 1, Hörgársveit.
Glæsilegt skemmtilega hannað og mjög vandað fimm herbergja fullbúið einbýlishús á einni hæð með bílskúr.  Húsið er á  fallegum stað með útsýni til allra átta – stærð 249,6 m², Þar af telur bílskúr 38,4m2
*** Eign sem vert er að skoða***
Húsið stendur á 3737 m2 leigulóð í landi Glæsibæjar, 604 Akureyri.  
Keyrsla frá Akureyri tekur um 6-7 mín og er tæpir 7 km.


- Stórar flísar á gólfum og vandað teppi í hjónasvítu.
- Frábært útsýni til allra átta.
- Stór lóð og mikið næði.
- Sérsmíðaðar innréttingar með ekta hnotuspón. Legrabox skúffur frá BLUM.
- Innihurðir eru spónlagðar með hnotu.
- KNX hússtjórnarkerfi.
- Tæki í eldhúsi frá AEG og uppþvottavél frá Miele.
- Möguleiki á rafdrifnum gardínum.
- Vönduð tæki á baðherbergjum.
- Falleg lýsing er í húsinu og einnig utandyra.
- Hljóðdempandi dúkar er í öllum loftum nema í bílskúr og geymslu
 
Forstofa er með flísum á gólfi og fallegum skápum og einnig eru skúffur.  Fallegur bekkur er í forstofu með skúffum undir.
Eldhús er með vandaðri stórri innréttingu.  Mjög stór eyja, vönduð tæki frá AEG, uppþvottavél frá Miele.  Ísskápur og frystiskápur eru í innréttingu.  Rennihurð út á steypta verönd. Gert er ráð fyrir Steini á eyju.
Borðstofa er við hlið eldhúss með flísum á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum.
Stofa er mjög rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum, hurð út í garð úr stofu. Fallegur arinn er í stofu sem skiptir alrýminu.
Hjónasvíta með teppi á gólfi, gólfsíðum gluggum,  fataherbergi og baðherbergi inn af. Útgönguhurð út á verönd.
Baðherbergi innaf svefnherbergi flísalagt með fallegum ljósum flísum, sturta með dökku sturtugleri, upphengt salerni.  Hurð er út á steyptan pall með heitum potti.  Gluggi með opnanlegu fagi.
Fataherbergi með mjög góðum hirslum sem eru spónlagðar með hnotu.   Rennihurðir eru inn í svefnherbergi og baðherbergi.
Barnaherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með skápum sem eru með hnotuspón. í einu herberginu er fallegur horngluggi með útsýni.
Sjónvarpshol sem er mjög rúmgott með gólfsíðum gluggum og útgönguhurð út.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu með dökku gleri. Innrétting með hnotuspón.  Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með góðri sprautulakkaðri innréttingu.
Geymsla innaf bílskúr með flísum á gólfi, opnanlegum glugga.
Bílskúr er mjög rúmgóður 38,4m2 að stærð með flísum á gólfi,  góðri innréttingu, tveimur útidyrahurðum og stórum glugga. Bílskúrhurð er 3,5m að breið.

Gengið er inn um bjarta forstofu að vestan, þaðan er annarsvegar hægt að ganga til suðurs inn í stórt opið rými með borðstofu og stofu. Þar er arinn.  Rúmgóð borðstofa við hlið eldhúss með stórum gluggum og rennihurð út á yfirbyggða verönd frá eldhúsi. Hjónasvíta er sér með fataherbergi og baðherbergi en þaðan er hurð út á verönd.  Stór rennihurð er út á verönd úr eldhúsi og einnig er útgönguhurð úr stofu.
Ef gengið er til norðurs úr forstofu er komið í sjónvarpshol, frá því er eru þrjú barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Einnig er útgönguhurð og stór gólfsíður gluggi til austurs út af sjónvarpsholi. 
Tenging milli íbúðar og bílskúrs er í gegnum þvottahús, en inn af bílskúr er einnig að finna geymslu.
-       Lofthæð í húsinu er um 2,75m og um 3,3m í stofu.
Húsið er staðsteypt með Nudura einangrunarkubbum, burðarveggir innanhúss eru steyptir sem og þak. Á þaki er einangrun og dúkur af viðurkenndri gerð. Gólfplata er einangruð með 4” plasteinangrun. Léttir veggir eru eru úr 95mm timburgrind, klæddir með spónaplötum og gipsi og einangraðir með 95mm steinull. 
Allir gluggar í húsinu eru úr áli, svartir að lit. Öryggisgler og sólvarnaragler er í öllu húsinu. Gólfhiti er í öllum gólfum, þá er tengi fyrir bæði heitan og kaldan pott á verönd og lagt fyrir sturtu og saunaklefa.  Vandað loftskiptikerfi frá Systemair og KNX hússtjónarkerfi.
-       Keyrsla frá Akureyri tekur um 6-7 mín og er tæpir 7 km.
-       Stórir gólfsíðir gluggar eru í húsinu og gott útsýni til allra átta.
 
 
-  Lóðarleigusamningur er til 90 ára frá febrúar 2022 og framlengist frá þeim tíma um 20 ár í senn ef báðir aðilar fullnægja skyldum sínum samkvæmt samningi.
-  Heimilt byggingarmagn á lóðinni er 500 m2 og allt að þrjár einingar. Heimilt er að byggja tvö allt að 80m2 hús til viðbótar.
-  Arkitekt er Valbjörn Ægir Vilhjálmsson.
-  Húsið afhendist við kaupsamning á því stigi sem það er í dag nema samið sé um annað.
-        3víddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar
-        Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á,  0,3% af brunabótamati eignar.


Allar nánari upplýsingar:
Friðrik  Sigþórsson sími 694-4220 - fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir sími 663-5260 – svala@fsfasteignir.is
 
 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/12/202437.350.000 kr.16.000.000 kr.249.6 m264.102 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
4.5 m2
Fasteignanúmer
2518400
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólatröð 13
Bílskúr
Skoða eignina Skólatröð 13
Skólatröð 13
605 Akureyri
190.2 m2
Einbýlishús
54
504 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Áshlíð 8
Skoða eignina Áshlíð 8
Áshlíð 8
603 Akureyri
263.9 m2
Einbýlishús
623
397 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Brúnagerði 1
Skoða eignina Brúnagerði 1
Brúnagerði 1
640 Húsavík
301.2 m2
Einbýlishús
978
329 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Laugarbrekka 7
Bílskúr
Skoða eignina Laugarbrekka 7
Laugarbrekka 7
640 Húsavík
235.4 m2
Einbýlishús
625
319 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin