Fasteignaleitin
Opið hús:22. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 29. júní 2026

Vesturberg 145

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
259.1 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
142.900.000 kr.
Fermetraverð
551.525 kr./m2
Fasteignamat
125.600.000 kr.
Brunabótamat
130.155.000 kr.
Mynd af Víðir Arnar Kristjánsson
Víðir Arnar Kristjánsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Geymsla 3.1m2
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2050303
Landnúmer
112035
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
í lagi, endurnýjað 2012
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
100
Upphitun
Danfoss sér
Inngangur
Sérinngangur
****DOMUSNOVA KYNNIR * EINBÝLISHÚS VEL STAÐSETT INNST Í BOTNLANGA"""

Fallegt einbýlishús með bílskúr og glæsilegri lóð á góðum og fjölskylduvænum stað miðsvæðis í Reykjavík
Birt stærð eignar samkv. HMS er 259,10 m2 og þar af er bílskúr skráður 29,2 m2 og útigeymsla 3,1 m2. 
Eignin er neðst í botnlangagötu alveg við grænt svæði á mjög friðsælum stað.

* Baðherbergi hannað af Rut Kára.
* Lóðin var hönnuð af Stanislas Bohic og er sérlega snyrtileg með hellulögn og verönd með skjólvegg , heitum potti og geymsluhúsi.
* Utanhússklæðning var í samræmi við hönnun Björns Skaptasonar hjá Atelier, arkitektum.
* Einstakt útsýni til suðurs, norðurs og vestur yfir Reykjavík og út til sjávar.
* 5-6 svefnherbergi og rúmgóðar stofur.
* Fjölskylduvæn staðsetning við fallega náttúru.  Mikið af gönguleiðum um skógi vaxið svæði sem tengist Elliðaárdal

Endurbætur á eigninni tiltelur ma.:
* 2012 var þakpappi og þakjárn endurnýjað
* 2015 var baðherbergi og gestasalerni á aðalhæð endurnýjað
* Ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta
* Húsið var klætt að utan fyrir einhverjum árum síðan

1. hæð :
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hol er flísalagt og rúmgott með þakgluggum.  
Gestasalerni er flísalagt með handlaug og wc.
Stofa 1 er rúmgóð og flísalögð með hornglugga. Útgengt út á hellulagða verönd með skjólvegg og heitum potti. 
Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu með helluborði, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp og gott skápapláss. Morgunverðarkrókur við vegg. Útgengt út á verönd til norðurs með mikla möguleika. 
Þvottahús er flísalagt með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask og skápum.
Svefnherbergisgangur er með parket á gólfi og opnast í rúmgott hol með þakglugga og nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt baðkari og sér-sturtu, fallegri innréttingu og lýsingu.  Endurnýjað árið 2015. Hannað af Rut Kára.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp. Útgengt út á lóð.
Svefnherbergi 3 var áður tvö en hefur verið sameinað í eitt stórt herbergi.

2. hæð :
Stigi er teppalagður og leiðir upp í rúmgóða stofu.
Stofa 2 er í dag nýtt sem svefnherbergi 5. Parket á gólfi og arinn. Stórbrotið útsýni. 
Glerlistaverk eftir myndlistakonuna Stellu Guðmundsdóttir eru í glugga í stiga og á 2. hæð. 

Kjallari :
Stigi er teppalagður og leiðir niður í hol.
Geymslurými undir stiga hefur verið breytt í krúttlegt leikrými.
Svefnherbergi 4 er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa. Parket á gólfi. Gæti einnig verið nýtt sem hjónasvíta með eigin bað og fataherbergi.
Salerni með handlaug og wc.
Lítil geymsla er þar innaf sem gæti einnig verið fataherbergi.
Geymsla er rúmgóð með máluðu gólfi. 

Bílskúr er í bílskúrslengju ofan við húsið.  Skráður 29,2 m2. Upphitaður með heitu og köldu vatni. Nýlega innréttað vinnuborð í enda ásamt góðu hilluplássi.

Bílastæði er við húsið og einnig fleiri bílastæði ofar í götunni hjá bílskúrslengjunni.

Öll helsta þjónusta er í göngufæri eins og verslanir, sund, heilsurækt, skóla og heilsugæslu, sem og frábærar gönguleiðir, íþróttir og útivistarsvæði við Elliðaárdal svo fátt eitt sé nefnt.
Fallegt grænt svæði aðgengilegt við húsið og margar vinsælar gönguleiðir til suðurs og norðurs frá þeim punkti.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.854 2226 / vidir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.820 1002 / agnar@domusnova.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/06/202398.000.000 kr.117.000.000 kr.259.1 m2451.563 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1980
29.2 m2
Fasteignanúmer
2050303
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.350.000 kr.
Byggt 2005
3.1 m2
Fasteignanúmer
2050303
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
1.805.000 kr.

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hæðarbyggð 20
DJI_0153.JPG
Skoða eignina Hæðarbyggð 20
Hæðarbyggð 20
210 Garðabær
265 m2
Einbýlishús
835
755 þ.kr./m2
200.000.000 kr.
Skoða eignina Melbær 21
m21-u01.jpg
Skoða eignina Melbær 21
Melbær 21
110 Reykjavík
311.3 m2
Raðhús
1136
514 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 22
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Hraunbraut 22
Hraunbraut 22
200 Kópavogur
252.6 m2
Einbýlishús
824
871 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Einbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
209.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin