LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða íbúð í kjallara þessa fallega húss við Tómasarhaga 17 í Reykjavík. Birt flatarmál eignarinnar er 80fm, þar af er aðskilið herbergi á sömu hæð, sem útbúið hefur verið til útleigu. Þar er sér baðherbergi.
Íbúðin sjálf skiptist í anddyri, eldhús, endurnýjað baðherbergi, stofu og tvö rúmgóð svefnherbergi. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð.
Fallegur, sameiginlegur garður. Samtals eru 3 íbúðir í húsinu.Eignin getur verið laus fljótlega, eftir samkomulagi.
// MÖGULEGAR ÚTLEIGUTEKJUR //Allar nánari upplýsingar veitir, Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali í s. 897 3412, ragnar@fastlind.isNánari lýsing eignar:Gengið er inn í rúmgott hol með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er vel skipulagt, með hvítri innréttingu og viðarborðplötu.
Baðherbergi endurnýjað á mjög smekklegan hátt.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I er parketlagt og með fataskáp.
Svefnherbergi II er parketlagt og með fataskáp.
Svefnherbergi III er utan íbúðar en innan hæðar. Þar er sérbaðherbergi og lítil innrétting með kæliskáp. Tilvalið gestaherbergi, eða til útleigu.
Þvottahús er sameiginlegt innan hæðar.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt eða sérkjör hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma, Securitas og Sýn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.