NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS
ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: 3ja herbergja í búð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi með útgangi út á sólpall til suðurs og stóran garð.
Húsið er steypt og steníklætt. Íbúðin er skráð 93,4fm auk geymslu sem er 5,5fm samtals 98,9fm.
Lýsing eignar:
Forstofa: Er opin inn í alrými með fatahengi. Flísar er á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er rúmgóð og björt, á einum vegg eru fallegar hljóðvistarplötur með lýsingu á. Útgangur út á sólpall. Harðparket er á gólfi en flísar innan við svalahurð.
Sólpallur: Er 21,9 fm að stærð og snýr í suður.
Eldhús: Er með góðu skúffu- og skápaplássi, uppþvottavél fylgir, eldavél með viftu fyrir ofan ásamt borðkróki. Harðparket er á gólfi.
Þvottahús/búr: Innangengt er úr eldhúsi. Gluggi er með opnanlegu fagi. Steinn á gólfi.
Svefnherbergi: Eru 2 talsins, með fataskáp í öðru þeirra og harð parketi á gólfum.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu í kringum vask, þreplausri sturtu, upp hengdu salerni ásamt glugga með opnanlegu fagi.
Geymsla: Er í sameign, 5,5 fm að stærð með glugga.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Í eignaskiptayfirlýsingu er skrifað að byggingaréttur er fyrir 5 bílskúra á lóðinni.
Viðhald:
2007 - Baðherbergi endurnýjað
2012 - Gler endurnýjað á norðurhlið
2018 - Endurnýjað járn á þaki, þakkantur og rennur
2018 - Skolp endurnýjað út í götu
2019 - Nýr forhitari
2020 - Gler endurnýjað á suðurhlið
2019 - Eldhús endurnýjað
2021 - Sturtuklefi fjarlægður og sett inn þreplaus sturta með glervegg
2022 - Gólfefni endurnýjuð á alrými
2024 - Gólfefni endurnýjuð í herbergjum
2025 - Kaldavatnslögn endurnýjuð í íbúð ásamt sameign
Rafmagn í íbúð endurnýjað að hluta, rafmagnstafla í íbúð endurnýjuð.Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja Aldir því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.