RE/MAX og Birna Rós Gísladóttir löggiltur fasteignasali kynna virkilega fallega 81,8 fm, bjarta og vel skipulagða íbúð á efstu hæð við Móabarð 34, Hafnarfirði. Gluggar á þrjá vegu og svalir til suðurs.Eignin er skráð 81,8 fm skv. Þjóðskrá Íslands/HMS, þar af er geymsla 5,8 fm. Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svalir til suðurs og sérgeymslu í sameign. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla. Húsið lítur mjög vel út að utan og er sameignin hin snyrtilegasta.
Sæktu söluyfirlit með því að smella HÉR.
Smelltu HÉR og skoðaðu eignina í 3D.Endurbætur síðustu ár:** Húsið var múrviðgert og málað að utan 2019
** Þak var málað 2019
** Stigagangur var málaður og teppalagður 2021
** Gluggar endurnýjaðir að hluta
** Eldhús endurnýjað nýlega
** Parket endurnýjað nýlega
** Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta, nýleg innrétting, speglaskápur, handlaug, sturtugler og blöndunartæki. Veggflísar málaðar.
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús: Hefur nýlega verið endurnýjað. Opnað var úr eldhúsi og í alrými. Hvítir efri skápar og borðplata með góðu vinnuplássi, mosagræn að hluta með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Góður gluggi er í eldhúsi. Parket á gólfi.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi, opið milli eldhúss og stofu. Útsýni til suðurs og austurs.
Svalir: Útgengt úr stofu út á góðar svalir til suðurs
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Nýjar skápahurðar.
Barnaherbergi: Með parketi á gólfi, fatahengi og skápur.
Baðherbergi: Endurnýjað að hluta til. Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu, salerni, rúmgóð innrétting undir handlaug ásamt stórum speglaskáp og gluggi með opnanlegu fagi.
Sér geymsla er í kjallara, 5,8fm.
Þvottahús er staðsett í kjallara með sér tenglum fyrir hverja íbúð. Einnig er þurrkherbergi í kjallara.
Hjóla og vagnageymsla: Staðsett í kjallara. Útgengt að framan við húsið.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla ofl.
Allar nánari upplýsingar veitir Birna Rós Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 861-9307 eða á netfangið birna@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk