Fasteignaleitin
Skráð 23. ágúst 2025

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
164 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
334.756 kr./m2
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
102240226
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
kæling / Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝLEG PENTHOUSE ENDAÍBÚÐ MEÐ ÞAKSVÖLUM OG SJÁVARÚTSÝNI* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA OG GEYMSLA* *EIGN Í SÉRFLOKKI, EINS OG NÝ, HÚSGÖGN FYLGJA* 

Nýleg og vönduð 4ra herbergja penthouse endaíbúð á besta stað í lyftuhúsi í Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 3 svefnherbergi með fataskápum og 2 baðherbergi. Rúmgott eldhús opið við stofu, útgengt á 13 fm svalir frá stofu en einnig eru 74 fm sér þaksvalir. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Stæði í bílakjallara og stór geymsla. Einnig geymsla innan íbúðar. Eignin er nokkura ára gömul en er sem ný, allt í topp standi.

Eignin er nýleg og afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum. Gengið er inn um sérinngang í forstofu. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi. Eldhús er útbúið gæða tækjum, innfeldur vaskur og filter á vatninu. Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús. Eldhús er skemmtileg opið við stofu og borðstofu, og frá stofu er rennihurð út á 13 fm svalir með morgunsól og markísu. Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum og stærsta svefnherbergið er með sér baðherbergi. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Geymsla er innan íbúðar en einnig er rúmgóð geymsla í bílakjallara. Miðstýrt innfelt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita.

Eigninni fylgir 74 fm sér þakverönd. Þar er stórglæsilegt útsýni til sjávar og yfir sundlaugargarðinn. Þar sem eignin er staðsett við enda hússins er mikið næði og hægt að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds. Á þaksvölum er einnig markísa, ásamt vatnstengi / sturtu og væri auðvelt að gera útieldhús á svölunum. 

Eigninni fylgir vel staðsett og rúmgott stæði í lokuðum bílakjallara, ásamt rúmgóðri geymslu með mikilli lofthæð sem staðsett er beint á móti stæðinu, og gengur lyftan alla leið niður. 

Um er að ræða best staðsettu eignina í þessu fallega húsi og einstakt tækifæri til að eignast penthouse íbúð í hjarta Orihuela Costa í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli. 

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 893 2495


Verð: 379.000 evrur eða 54.900.000 ISK (m.v. gengi 145)

Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is


Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
102240226

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorrasalir 7
Jón Rafn_vefur.png
Skoða eignina Þorrasalir 7
Þorrasalir 7
201 Kópavogur
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 314
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 314
105 Reykjavík
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
1060 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 18:30-19:00
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
122 m2
Fjölbýlishús
514
639 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 33
67 ára og eldri
B75A6463.jpg
Skoða eignina Hjallabraut 33
Hjallabraut 33
220 Hafnarfjörður
69.3 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin