Fasteignaleitin
Opið hús:18. des. kl 16:00-17:00
Skráð 16. des. 2025
Deila eign
Deila

Einarsnes 6

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
180.8 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
170.000.000 kr.
Fermetraverð
940.265 kr./m2
Fasteignamat
134.500.000 kr.
Brunabótamat
89.350.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1974
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2029356
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar auk töflu
Frárennslislagnir
myndaðar og í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Bæði svalir og stór verönd með potti
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt, mjög mikið endurnýjað, bjart og vel skipulagt 180,8 fermetra raðhús á tveimur hæðum, með innbyggðum 22,7 fermetra bílskúr, á fallegri lóð á einstökum útsýnisstað við Einarsnes í Reykjavík.

Eignin hefur sem fyrr segir verið mikið endurnýjuð:


- 2025 Baðherbergi á neðri hæð endurnýjað og lagður gólfhiti
- 2024 Baðherbergi á efri hæð endurnýjað og lagður gólfhiti
- 2024 Allar innihurðir endurnýjaðar
- 2023 Byggð stór viðarverönd og settur heitur pottur á verönd á baklóð
- 2020 Loft á efri hæð tekið upp, klætt með hvíttuðum viðarfjölum og sett innbyggð led-lýsing
- 2020 Lagt vínylparket á nánast allt húsið með hljóðdempandi undirlagi
- 2020 Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð
- 2020 Raflagnir, rafmagnstafla, tenglar og rofar endurnýjaðir
- 2003 Húsið einangrað og klætt að utan með áli, skipt um þakjárn, þakrennur og niðurföll


Lýsing eignar:
Forstofa, vinylparket og innbyggðir fataskápar með rennihurðum.
Hol, vinylparketlagt og með glugga. Úr holi er stigi upp á efri hæð hússins.
Geymsla, undir innistiga.
Hjónaherbergi, vinylparketlagt og rúmgott með innbyggðum fataskápum með rennihurðum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting, veggskápur, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg.
Barnaherbergi I, vinylparketlagt.
Barnaherbergi II, vinylparketlagt.
Sjónvarpshol, lítið, vinylparketlagt og með útgengi á baklóð hússins. 

Gengið er upp á efri hæð hússins um viðarstiga úr holi neðri hæðar:

Stigapallur, vinylparketlagður.
Baðherbergi II, með glugga, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með innbyggðum tækjum í vegg.
Eldhús, vinlylparketlagt, rúmgott og bjart með góðum gluggum. Hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp með klakavél og spanhelluborð. Áföst borðaðstaða er á eldhúsinnréttingu.
Þvottaherbergi, innaf eldhúsi, vinylparketlagt og með glugga.
Samliggjandi stofur, vinylparketlagðar, bjartar og mjög rúmgóðar með aukinni lofthæð og innbyggðri led-lýsingu í loftum. Tveir veggir í stofu eru viðarklæddir að hluta og úr stofum er útgengi á mjög stórar svalir til vesturs, norðurs og austurs, flísalagðar að hluta. Frá stofum og svölum er stórkostlegt útsýni út á sjóinn, að Reykjanesi, Snæfellsjökli, að Hallgrímskirkju og víðar.

Bílskúr, er með hita, rafmagni, rennandi heitu og köldu vatni, gluggum og útgengi á baklóð. 

Húsið að utan lítur vel út og var einangrað upp á nýtt og klætt með áli árið 2003. Á sama tíma var skipt um þakjárn, þakrennur og niðurföll.  Gler í gluggum hefur verið endurnýjað að hluta og gluggar yfirfarnir eins og þurft hefur.

Lóðin, sem er eignarlóð, er fulfrágengin.  Innkeyrsla á framlóð er malbikuð og á baklóð eru stór viðarverönd með gróðurbeðum, nýjum heitum potti og stiga niður á stóra tyrfða flöt með trjágróðri og nýlegri flaggstöng.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á fallegum útsýnisstað.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/02/202087.000.000 kr.84.000.000 kr.180.8 m2464.601 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1974
22.7 m2
Fasteignanúmer
2029356
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.600.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarfótur 21
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 21
102 Reykjavík
176.9 m2
Fjölbýlishús
423
932 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 21
Bílskúr
Bílastæði
Hlíðarfótur 21
102 Reykjavík
176.9 m2
Fjölbýlishús
423
932 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 16
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 16
Valshlíð 16
102 Reykjavík
217 m2
Fjölbýlishús
523
747 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
126.7 m2
Fjölbýlishús
413
1238 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin