Fasteignaleitin
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 19. ágúst 2026

Drómundarvogur 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
116.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
769.033 kr./m2
Brunabótamat
80.000.000 kr.
Byggt 2022
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25110616
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Nýtt á skrá! Drómundarvogur 2 Reykjavík - Fjögurra herbergja íbúð með stórri verönd til suðurs neðst við Voginn.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 116,9 fermetra 4 herbergja íbúð á 1. hæð með stórum 44,8 fermetra sérafnotareiti í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Drómundarvog 2 í Reykjavík. Um er að ræða vandað og viðhaldslítið hús byggt af ÞG Verk. 

Rúmgott alrými sem myndar stofu og eldhús með eldhúseyju og góðu skápaplássi. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á 44,8 fermetra afgirta verönd. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Stór 13,2 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.


Nánari lýsing:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús. Útgengi á svalir.
Verönd: Er stór, eða 44,8 fermetrar að stærð, og snýr til suðurs. 
Eldhús: Með fallegri hnotu innréttingu frá Nobilia (GKS) og eyju. Bakaraofn, spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og eyjuháfur. Stýranleg led-lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. 
Hjónaherbergi: Er stórt (16,9 fm) með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og glugga til suðurs.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 13,2 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
101 Reykjavík fasteignasala
www.101.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 138
Hleðslustöð
Skoða eignina Kleppsvegur 138
Kleppsvegur 138
104 Reykjavík
109.4 m2
Fjölbýlishús
413
712 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunteigur 24
Skoða eignina Hraunteigur 24
Hraunteigur 24
105 Reykjavík
119.3 m2
Fjölbýlishús
514
795 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 413
Hleðslustöð
Opið hús:20. ágúst kl 16:30-17:00
Laugaborg íbúð 413
105 Reykjavík
108.4 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin