Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Heiðarlundur 4 D
Vel skipulögð 4-5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr á afar vinsælum stað á Brekkunni.
Eignin er samtals 151,9 fm. þar af er bílskúr skráður 27,5 fm. samkvæmt HMS. Auk þess er geymsla í sameign tæpir 20 fm. sem er ekki skráð í heildarstærð íbúðar. Íbúðin skiptist í forstofu, geymslu, hol, eldhús og stofu á neðri hæð. Hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu á efri hæð.
Neðri hæð:Forstofa er með flísar á gólfi og fataskápum.
Geymsla inn af forstofu sem áður var þvottahús er með flísar á gólfi og hillur á veggjum. Lagnir til að koma fyrir þvottaaðstöðu aftur og eða vask eru til staðar.
Hol er með flísar á gólfi og þaðan er gengið upp á efri hæð um járn stiga með timburþrepum.
Eldhús hefur verið endurnýjað en orðið töluvert síðan. Innréttingin er hvít með miklu skápa og bekkjarplássi, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi og úr stofu er gengið út á steypta verönd til suðurs. Frá upprunalegri teikningu hefur stofa verið stækkuð aðeins til norðurs á kostnað bílskúrs.
Snyrting neðri hæðar hefur verið endurnýjuð, þar er upphengt salerni, innrétting með skápum og vaskur.
Efri hæð:Hol er með dúk á gólfi.
Svefnherbergi eru þrjú en voru áður fjögur. Í tveimur þeirra eru fataskápar og úr þeim tveimur herbergjum er er útgengt út á svalir. Úr minna herberginu eru svalir sem snúa til suðurs en úr hjónaherberginu er gengið út á þak bílskúrs. Svefnherbergi sem var opnað á milli er til hægri þegar komið er upp stigann. Hægt er að breyta til baka með nokkuð einföldum hætti.
Baðherbergið er rúmgott og glæsilegt enda nýlega endurnýjað. Þar eru flísar á gólfi og baðplötur úr Byko á veggjum, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og góð innrétting í kringum vask. Innst á baðherbergi er á bakvið rennihurðir innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og lítið geymslurými.
Bílskúr er með inngönguhurð og rafdrifinni innkeyrsluhurð, flísar á gólfi og vaskur inn í enda. Inntak og hitaveitugrind ásamt rafmagnstöflu er staðsett í bílskúr.
Annað: -Bílskúrshurð og timburverk í kringum hana endurnýjað nýlega
-Útidyrahurðir endurnýjaðar
-Timburverk á þaki bílskúrs endurnýjað
-Varmaskiptir á vatni á baðherbergi
-Rafmagnstafla endurnýjuð
-Frábær staðsetning, örstutt í skóla og leikskóla, íþróttasvæði KA, verslun og ýmiskonar þjónustu
-Fyrirhugað er að fara í endurnýjun á þaki, áætlaður kostnaður á íbúð í kringum 2-2,5 mkr. Búið er að fá verktaka í verkið.
-Nokkrar flísar lausar á neðri hæð, aðallega í geymslu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955