Fasteignaleitin
Skráð 2. júní 2025

Valshlíð 1

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
81.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
100.900.000 kr.
Fermetraverð
1.235.006 kr./m2
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532722
Landnúmer
223517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi

Hlíðarhorn.is og S8 ehf. kynna Valshlíð 1 - Íbúð 503.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin við kaupsamning. Með í kaupum á íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í sérreknum bílakjallara (langtímaleiga með íbúð).

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint. Einfalt og skilvirkt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 75,675,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur. Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér.

S8-leiga: Íbúðin er einnig í boði til leigu að lágmarki í 1 ár. Leiguverð íbúðar fylgir markaðsverði á hverjum tíma að viðbættu hússjóðsgjaldi.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Vönduð og stórglæsileg 2ja herbergja rúmgóð þakíbúð á 5. hæð á norðvesturhorni Hlíðarhorns. Birt stærð er 81,7 fm þar af 5,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými, svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með einstaklega vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3.

Nánari lýsing: Í opnu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á yfirbyggðar vestursvalir. Óhindrað útsýni yfir Vatnsmýrina og Þingholtin. Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskáp. Blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggð blöndunartæki í sturtu. Afmörkuð aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0014. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðunni, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

ATH. Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Iðnbúð 2
Skoða eignina Iðnbúð 2
Iðnbúð 2
210 Garðabær
43 m2
Fjölbýlishús
211
1021 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 27
Bílastæði
Skoða eignina Bjarkarholt 27
Bjarkarholt 27
270 Mosfellsbær
178.9 m2
Fjölbýlishús
311
886 þ.kr./m2
158.500.000 kr.
Skoða eignina Þórðarsveigur 4
Bílastæði
Opið hús:11. júní kl 16:30-17:00
Þórðarsveigur 4
113 Reykjavík
103.1 m2
Fjölbýlishús
413
775 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 2
Skoða eignina Austurhólar 2
Austurhólar 2
800 Selfoss
69.1 m2
Fjölbýlishús
211
722 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin