** Hafið samband og bókið tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg og vel skipulögð 178,9 m2, 3ja herbergja 'Penthouse' íbúð á 5. og efstu hæð í lyfuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Eignin er skráð 178,9 m2, þar af íbúð 158,5 m2 og tvær geymslur í sameign í kjallara, önnur 11,3 m2 og hin 9,1 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi, svefnherbergi/stofu, þvottaherbergi og gestasalerni. Tvennar rúmgóðar svalir fylgja eigninni, aðrar út af stofu til suðvesturs en hinar út frá hjónaherbergi til suðurs. Mjög fallegt útsýni er frá eigninni. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í verslun og alla helstu þjónustu. Húsið var byggt 2020.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með viðarparketi á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Gangur er með viðarparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru opnar við eldhús og með viðarparketi á gólfi. Útgengt er á stórar 35 m2 svalir til suðvesturs með glæsilegu útsýni. Samþykktar teikningar fyrir svalalokun liggja fyrir.
Eldhús er með viðarparketi á gólfi, fallegri innréttingu með stein á borðum og eldhúseyju sem sitja má við. Í innréttingu er ofn, örbylgjuofn, helluborð og vifta. Gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp. Harðparket á gólfi. Gólfsíðir gluggar gefa góða birtu inn í eldhús og stofu.
Hjónaherbergi er með viðarparketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott
fataherbergi með miklu skápaplássi. Úr rýminu er útgengt á 17,7 m2 svalir til suðurs. Samþykktar teikningar fyrir svalalokun liggja fyrir.
Baðherbergi er inn af hjónaherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góðri innréttingu með handlaug, 'walk-in' sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Gólfiti er á baðherbergi.
Stofa/hebergi er á teikningu merkt sem píanóstofa en hægt að loka af með hurðum og nota sem svefnherbergi. Viðarparket á gólfi.
Gestasalerni er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með handlaug og vegghengdu salerni.
Þvottahús er með flísum á gólfi.
Bílastæði er í lokuðum bílakjallara. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla er við stæðið.
Geymsla 1 er í sameign í kjallara 11,3 m2.
Geymsla 2 er inn af bílstæði í bílakjallara 9,1 m2.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í kjallara hússins.
Verð kr. 158.500.000,-