Fasteignaleitin
Skráð 11. júní 2025

Breiðimelur 1-9I íbúð 204

Nýbygging • FjölbýlishúsAusturland/Reyðarfjörður-730
79.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.500.000 kr.
Fermetraverð
657.895 kr./m2
Fasteignamat
13.850.000 kr.
Mynd af Heimir Arnfinnsson
Heimir Arnfinnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2536635
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
9,81
Upphitun
rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
BREIÐIMELUR | NÝJAR EIGNIR | HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI FYRIR FYRSTU KAUPENDUR
Fasteignasala Austurlands kynnir: Breiðimelur 1-9, Reyðarfirði.

Upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna hér

3ja herbergja íbúð (vestan við miðju á efri hæð byggingarinnar) með sér inngangi í nýju 2ja hæða fjölbýlishúsi.

EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583 2500 // heimir@fastaust.is

Íbúðin er 80,0 m², þar af geymsla 2,7 m² samkvæmt skráningu HMS. (Upplýsingar um 90m² eignirnar má finna hér)
Eignin skiptist upp í forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, í sameign má svo finna hjóla- og vagnageymslu ásamt geymslurými fyrir hverja íbúð.

Falleg eign á frábærum útsýnisstað!
 
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er frá stofu út á svalir til suðurs. 
Eldhús með Axis innréttingu og eyju. Helluborð á eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með. Pláss er fyrir 200cm ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, þar er sturta, vask innrétting og speglaskápur, vegghengt salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis eru flísalagðir. Vegghengdur handklæðaofn.
Þvottahús er á baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar með vinnuborði ofan á og skápur fyrir ofan og til hliðar. 
Sér geymsla ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins. 

- Innréttingar og skápar eru frá Axis innréttingum með eikaráferð og gólfefni frá Birgisson.
- Íbúðin er kynnt með gólfhita. Á baðherbergi er einnig handklæðaofn.
- Íbúðinni verður skilað fullbúinni með gólfefnum. Flísar verða á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi og harðparket í öðrum rýmum.
- Veggir og loft íbúðar verða máluð í hvítum lit. Reykskynjarar og slökkvitæki fylgja íbúðinni.

Breiðimelur 1-9 er fjölbýlishús á 2 hæðum með 11 íbúðum. Útveggir eru forsmíðaðar CLT einingar. Gólfplötur og sökklar eru staðsteyptar. Þak er einhalla, uppbyggt með CLT einingum og einangrað að ofan verðu og klætt með tvöföldum ásoðnum þakpappa. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.
Gangstétt er hellulögð, gróðurbeð grófjöfnuð án gróðurs, aðrir hlutar lóðar eru þökulagðir. Stétt við inngang að íbúðum á neðri hæð er steypt. Lóðin er sameiginleg 2.200 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar. 

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsingar og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
 
Húsfélag hefur ekki verið stofnað og kemur það í hlut nýrra eigenda að stofna húsfélag vegna sameignar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.

Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583 2500 // heimir@fastaust.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1.
Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m/vsk.
5. Skipulagsgjald - 0,3% af brunabótamati þegar þess verður krafist

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Móstekkur 4b 102
IMG_1392 Large.jpeg
Móstekkur 4b 102
800 Selfoss
132.5 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Móstekkur 2c 201
IMG_1355 Large.jpeg
Móstekkur 2c 201
800 Selfoss
133.6 m2
Fjölbýlishús
413
598 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb307
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb307
210 Garðabær
99.2 m2
Fjölbýlishús
312
1158 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb204
Bílastæði
Opið hús:14. mars kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb204
210 Garðabær
144.2 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin