Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2026

Hafnarbraut 14C

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
92.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
950.270 kr./m2
Brunabótamat
59.300.000 kr.
Byggt 2021
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25089341
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Trausti fasteignasala og Mirabela Aurelia Blaga löggiltur fasteignasali kynnir: Glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með svölum til vesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Hafnarbraut 14C í Kópavogi. Skráð stærð eignarinnar er 92,5 fm, þar af 4,9 fm geymsla innan íbúðar, sem í dag er nýtt sem skrifstofa. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu og lyfta gengur alla leið niður í bílakjallara. Fallegar og samræmdar innréttingar eru í eigninni, með Durastone akrílsteini á borðplötum, auk þess sem gólfefni eru plankaharðparket og flísar.
Milli byggingarinnar og strandarinnar við Fossvog er fallegt grænt útivistarsvæði. Göngu- og hjólastígar liggja hjá eigninni og tengjast meðal annars nýrri göngu- og borgarlínubrú milli Kópavogs og Reykjavíkur, sem er í næsta nágrenni.


Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.

Nánari lýsing:
Forstofa:
komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskápum og fatahengi.
Stofa: stofan er rúmgóð og björt og rúmar einnig borðstofu. Harðparket er á gólfi og frá stofu er gengið út á vestursvalir.
Eldhús: eldhúsið er vel útbúið með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Voke III. Gott skápapláss, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og span helluborð með háf yfir. Ofninn er í vinnuhæð.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi og innrétting með stein á borði. Salerni er upphengt og handklæðaofn.
Þvottaherbergi: innaf baðherbergi er þvottaherbergi.
Svefnherbergi: herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná uppí loft.
Geymsla: geymsla eignarinnar er innaf eldhúsi.
Sameign: í sameign hússins er hjóla og vagnageymsla og eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.
Niðurlag: Þetta er eftirsótt og vinsæl staðsetning þar sem allt er til staðar í hverfinu: Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð. Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð. Svæðið í heild mun einkennast af nýjum íbúðum í bland við atvinnubyggð. Bryggjusvæðið verður endurnýjað og gagnger uppbygging mun eiga sér stað í hverfinu sem er staðsett á einum fallegasta og gróðursælasta útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Trausti fasteignasala
www.trausti.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Reynihvammur 27
Bílskúr
Skoða eignina Reynihvammur 27
Reynihvammur 27
200 Kópavogur
94,4 m2
Fjölbýlishús
312
740 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Bílskúr
Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Nýbýlavegur 66
200 Kópavogur
73,6 m2
Fjölbýlishús
212
923 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Mjósund 13 (með aukaíbúð)
Mjósund 13 (með aukaíbúð)
220 Hafnarfjörður
109,9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
53
727 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 35a
Skoða eignina Vesturgata 35a
Vesturgata 35a
101 Reykjavík
99,4 m2
Parhús
523
804 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin